Golf

Tiger með og telur sig geta unnið

Sindri Sverrisson skrifar
Tiger Woods hitaði upp á Augusta-vellinum í dag og er klár í slaginn á fimmtudaginn.
Tiger Woods hitaði upp á Augusta-vellinum í dag og er klár í slaginn á fimmtudaginn. Getty/Andrew Redington

Tiger Woods snýr aftur á sitt fyrsta risamót í vikunni, á Masters-mótið í golfi í Georgíufylki, eftir bílslysið alvarlega í febrúar í fyrra sem hefur haldið honum frá keppni.

Tiger meiddist svo illa á fæti í bílslysinu að óttast var að hann myndi ekki spila golf aftur sem afrekskylfingur. Raunar óttuðust læknar að aflima þyrfti þennan 46 ára gamla Bandaríkjamann.

Hann hefur hins vegar náð góðum bata og eftir að hafa prófað að taka æfingahring á Augusta-vellinum í síðustu viku staðfesti Tiger í dag að hann yrði með á Masters sem hefst á fimmtudaginn.

Aðspurður hvort hann teldi sig geta unnið Masters, sem hann vann í sjötta sinn árið 2019 eftir að hafa ekki unnið risamót í áratug, var svar Tigers einfalt: „Já.“

Búið er að tilkynna um ráshópa á fimmtudaginn og er Tiger í 14. ráshópi með þeim Louis Oosthuizen og Joaquin Niemann. Fara þeir af stað um klukkan hálfþrjú að íslenskum tíma.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Woods var á tvö­földum há­marks­hraða þegar hann ók út af

Tiger Woods, fyrrverandi besti kylfingur heims, ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða þegar hann fór út af veginum og valt í Kaliforníu í febrúar. Lögreglustjórinn í Los Angeles-sýslu segir þó ekkert benda til þess að Woods hafi verið undir áhrifum áfengis eða lyfja þegar slysið varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×