Viggó vongóður um að geta beitt sér gegn Austurríki Sindri Sverrisson skrifar 5. apríl 2022 18:00 Viggó Kristjánsson á landsliðsæfingu. Hann reiknar með að geta spilað gegn Austurríki í næstu viku. vísir/vilhelm Viggó Kristjánsson meiddist í ökkla þegar íslenska landsliðið kom saman til æfinga hér á landi í síðasta mánuði en reiknar með því að geta látið til sín taka í landsleikjunum mikilvægu gegn Austurríki.
Íslenska landsliðið kemur saman og mætir Austurríki í Bregenz á miðvikudaginn í næstu viku, og svo aftur á Ásvöllum laugardaginn 16. apríl. Leikirnir skera úr um það hvort liðanna kemst á heimsmeistaramótið sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi í janúar. Meiðsli hafa angrað Viggó síðustu vikur eftir að liðband í ökkla slitnaði á æfingu landsliðsins um miðjan mars. Vegna meiðslanna hefur Viggó ekki getað æft sem skyldi síðustu vikur en þó spilað með liði Stuttgart sem er skammt frá fallsæti í þýsku 1. deildinni í handbolta. Viggó segir að í ljósi þess að meiðslin séu ekki svo alvarleg, og að fram undan séu mikilvægir leikir með Stuttgart og landsliðinu, komi ekki til greina að taka sér hvíld á þessum tímapunkti. Frekar æfi hann og spili með ökklann vel teipaðan. Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem að Viggó glímir við meiðsli en hann meiddist í þumalfingri í haust og missti af átta leikjum í byrjun tímabilsins. Hvort sem að Stuttgart fellur um deild eða ekki er ljóst að Viggó spilar áfram í efstu deild Þýskalands á næstu leiktíð því hann hefur samið um að snúa aftur til Leipzig í sumar.
Þýski handboltinn HM 2023 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira