Golf

Vakti konuna og bað hana um að keyra sig upp á spítala: Hélt ég væri að deyja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bubba Watson mætir á Mastersmótið í vikunni þar sem hann hefur tvisvar fagnað sigri.
Bubba Watson mætir á Mastersmótið í vikunni þar sem hann hefur tvisvar fagnað sigri. EPA-EFE/TANNEN MAURY

Bandaríski atvinnukylfingurinn Bubba Watson hefur sagt frá þeim andlegu erfiðleikum sem hann hefur verið að glíma við síðasta rúma áratuginn. Hann hefur endað margoft inn á sjúkrahúsi.

Bubba, sem hefur unnið Mastersmótið tvívegis, hefur unnið sér í kringum fimmtíu milljónir dollara í verðlaunafé á ferlinum en gerðist atvinnumaður árið 2002.

Watson fór nýverið í viðtal hjá Independent þar sem hann fór yfir glímu sína við kvíðaköst eða ofsahræðslu.

Bubba er án efa einn af frægari kylfingum heimsins undanfarin áratug eftir sigra sína á Mastersmótunum 2012 og 2014. Hann hefur alls unnið tólf mót á bandarísku mótaröðinni. Bubba er nú 43 ára gamall og í þessu viðtali má sjá að líf hans síðasta áratuginn hefur ekki verið neinn dans á rósum.

Watson segir að fyrsta kvíðakastið hafi komið árið 2007 og þá hélt hann að hann væri að fá hjartaáfall.

„Ég flýtti mér heim frá mótinu, vakti konuna mína og bað hana um að keyra mig upp á bráðamóttöku. Ég man eftir því að ég hugsaði um það hvort ég væri að deyja,“ sagði Watson.

Árið 2011, árið fyrir fyrsta sigur hans á Mastersmótinu þá ágerðist vandamálið. Watson sagði opinberlega frá því að hann væri að glíma við magakveisu. Hið rétt var að hann hafði átt mjög erfitt eftir að faðir hans dó skyndilega úr krabbameini.

„Ég gat ekki andað. Ég var hræddur og hélt ég væri að deyja,“ sagði Watson.

Eftir að Bubba endaði á bráðamóttöku árið 2016 þá ákvað hann að segja frá vandamálum sínum. Hann skrifaði bók á síðasta árið þar sem hann fór yfir þessa hluti sem og þær áskoranir sem hann er að glíma við vegna þessara andlegu veikinda. Hann leggur áherslu á það að láta það sem gerist á golfvellinum ekki hafa áhrif á hans líf.

„Ég varð þeirrar blessunar aðnjótandi að geta skilið golfið eftir á vellinum. Ég er þakklátur fyrir að vera á lífi. Ég var kominn alveg á botninn en tókst að koma mér til baka,“ sagði Watson sem er á leiðinni á Mastersmotið seinna í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×