Orri og Aron meistarar í miðjum leik Sindri Sverrisson skrifar 3. mars 2022 13:30 Orri Freyr Þorkelsson fagnar marki með íslenska landsliðinu á EM í janúar. Hornamaðurinn varð í gær norskur deildarmeistari en hann kom til Elverum frá Haukum síðasta sumar. Getty/Sanjin Strukic Orri Freyr Þorkelsson og Aron Dagur Pálsson urðu í gærkvöld að sætta sig við tap með norska handboltaliðinu Elverum. Á meðan á leiknum stóð urðu þeir engu að síður deildarmeistarar.
Elverum tók í gærkvöld á móti Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu og tapaði með þriggja marka mun, 27-24. Eftir leik höfðu Orri, Aron og félagar engu að síður ástæðu til að fagna því þá var orðið ljóst að Elverum hefði unnið norsku deildina. Skömmu áður en leikur Elverum í Meistaradeildinni hófst var nefnilega hafinn leikur Kolstad og Drammen í norsku deildinni. Drammen var eina liðið sem átti möguleika á að ná Elverum að stigum þar til að liðið tapaði í gær, 31-30. Elverum hefur unnið alla leiki sína í norsku deildinni og er með 42 stig þegar liðið á enn eftir að spila fimm leiki. Drammen er í 2. sæti með 33 stig og á aðeins fjóra leiki eftir. Fagna titli á fyrsta tímabilinu Þetta er sjötti deildarmeistaratitill Elverum. Orri kom til félagsins síðasta sumar frá Haukum en Aron Dagur bættist í hópinn í febrúar frá Guif í Svíþjóð. Elverum bíður þess nú að vita hvaða lið verður andstæðingur þess í úrslitakeppninni í Noregi en þar leika átta efstu liðin úr deildarkeppninni. Elverum á auk þess góða möguleika á að komast áfram úr sínum riðli í Meistaradeildinni þrátt fyrir tapið í gær en liðið á þar einn leik eftir gegn Vardar næsta miðvikudag.
Norski handboltinn Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira