Heilsa

Hreyfum okkur saman: Hörkugóðar rassæfingar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríks hefur starfað við hreyfingu frá 18 ára aldri.
Anna Eiríks hefur starfað við hreyfingu frá 18 ára aldri. Hreyfum okkur saman

Í svona veðri er algjörlega tilvalið að gera heimaæfingu, enda er fólk hvatt til að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Í þætti dagsins af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks frábærar rassæfingar.

Í níuna þættinum má finna æfingar sem leggja áherslu á rass- og lærvöðva. Þeir sem eiga ökklalóð geta notað þau í þessari æfingu til að fá ennþá meira út úr þeim, en það er þó auðvitað ekki nauðsynlegt.  Einu áhöldin sem þú þarft er dýna. 

Líkt og alltaf er æfingin í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni. Í þáttunum Hreyfum okkur saman fer Anna Eiríks yfir einfaldar æfingar sem hægt er að gera heimavið. Þættirnir koma út á mánudögum og fimmtudögum á á Lífinu á Vísi og Stöð 2+. Fyrstu sjö þættina má finna HÉR.


Tengdar fréttir

Hreyfum okkur saman: Hreyfiflæði og sjálfsnudd

Í áttunda þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks rólega heimaæfingu. Æðislegur tími sem liðkar líkamann og losar um stífa vöðva með góðu sjálfsnuddi þar sem notuð er nuddrúlla. 

Hreyfum okkur saman: Styrktaræfingar með ketilbjöllu

Í sjötta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu með ketilbjöllu. Það er þó auðvitað líka hægt að gera æfinguna með handlóði eða annari þyngd ef þú átt ekki ketilbjöllu á heimilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×