Golf

DeChambeau boðnir sautján milljarðar fyrir að „svíkja lit“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryson DeChambeau þykir góður kostur sem andlit nýju golfdeildarinnar.
Bryson DeChambeau þykir góður kostur sem andlit nýju golfdeildarinnar. Getty/Oisin Keniry

Það er valdabarátta í golfinu og svo virðist vera sem nýja sádi-arabíska golfdeildin sé að bjóða kylfingum gull og græna skóga fyrir að snúa bakinu við PGA og ganga til liðs við þá.

Nýjustu fréttirnar eru af risatilboði sem bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau á að hafa fengið um að verða andlit nýju SGL golfdeildarinnar í Sádi Arabíu.

DeChambeau á að hafa fengið tilboð upp á hundrað milljónir punda eða rúma 17,2 milljarða íslenskra króna. DeChambeau er ungur enn, bara 28 ára, og því líklegur til að vera í hópi þeirra bestu í heimi í langan tíma til viðbótar.

PGA mótaröðin og heimsbikarinn hafa hótað því að þeir kylfingar sem taki þetta skref verði komnir í lífstíðarbann frá þeirra keppnum.

21 af 50 bestu kylfingum heims eru staddir á Saudi International golfmótinu þar sem þeir fengu allir mjög vel borgað fyrir að mæta á mótið. Sagan segir að Sádarnir ætli líka að nota tækifærið til að ræða við þá um að ganga til liðs við nýju golfdeildina.

Lee Westwood og Ian Poulter eru meðal þeirra sem skrifuð undir leynisamning við Sádana en upphæðirnar verða ekki gerðar opinberar.

Það er ekki búið formlega að tilkynna nýju sádi-arabísku golfdeildina en fátt virðist koma í veg fyrir það núna að hún verði að veruleika og fari í samkeppni við PGA og heimsbikarinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×