Aron endaði með silfur á Asíumótinu Sindri Sverrisson skrifar 31. janúar 2022 16:36 Aron Kristjánsson og hans menn urðu að sætta sig við tap í úrslitaleik Asíumótsins. Getty/Sven Hoppe Aroni Kristjánssyni tókst ekki að rjúfa sigurgöngu Katar á Asíumótinu í handbolta en fer heim frá Sádi-Arabíu með silfurmedalíu sem þjálfari Barein.
Aron komst af öryggi með Barein í úrslitaleik Asíumótsins en þar mætti liðið ofjörlum sínum og varð að sætta sig við fimm marka tap, 29-24. Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn og liðin skiptust á að hafa forystuna. Barein gat minnkað muninn í eitt mark í lok fyrri hálfleiks en missti boltann og Katar jók muninn í þrjú mörk af vítalínunni, 14-11, áður en liðin gengu til búningsklefa. Katar komst svo í 22-17 um miðjan seinni hálfleik. Aron reyndi að bæta úr stöðunni með því að taka leikhlé en Barein tókst ekki að skapa spennu á lokakaflanum og varð að sætta sig við silfur. Þetta er fimmta skitpið í röð sem að Katar fagnar sigri á Asíumótinu. Í fjórum þessara síðustu fimm úrslitaleikja hefur liðið mætt Barein, sem enn á eftir að verða Asíumeistari. Heimamenn í Sádi-Arabíu unnu bronsverðlaun í ár með 26-23 sigri á Íran fyrr í dag. Suður-Kórea varð svo fimmta Asíuliðið til að tryggja sér sæti á HM á næsta ári.
Handbolti Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira