Neytendur

Hækkandi húsnæðisverð vegi þyngst

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Daníel Svavarsson aðalhagfræðingur Landsbankans. 
Daníel Svavarsson aðalhagfræðingur Landsbankans.  Vísir/Vilhelm

Hækkun verðbólgu er ekki séríslenskt fyrirbæri heldur færist hún einnig í aukana erlendis, segir aðalhagfræðingur Landsbankans. Frá aldamótum hafi dregið verulega úr sveiflum hér á landi þó að verðbólga hafi verið óstöðugari á Íslandi en í okkar helstu viðskiptalöndum. 

Verðbólga síðustu tólf mánuði mælist nú 5,7 prósent samkvæmt neysluvísitölu Hagstofu Íslands og hefur ekki verið hærri frá því í mars 2012. Daníel Svavarsson aðalhagfræðingur Landsbankans segir að einn liður vegi þyngst í þessu samhengi.

„Það sem er að skýra að lang stærstum hluta verðbólgunnar í dag er húsnæðisliðurinn. Húsnæðisverð hækkaði mjög mikið í fyrra og það er að skýra langstærstan hlua af verðbólgunnni,“ segir Daníel.

Hann segir að verðbólgan hafi líka verið að aukast erlendis. Ástæður aukningarinnar séu þó misjafnar.

„Enn sem komið eru innfluttar vörur og bensín ekki að skýra nema um eitt prósent af 5,7 prósent verðbólgu. En það sem hefur verið að knýja verðbólgu erlendis er hækkun á orkuverði sem hefur ekki haft mikil áhrif hér á landi en hins vegar hefur húsnæðisliðurinn haft mun meiri áhrif hérna. En verðbólgan er að aukast bæði hér og erlendis en það er af mismunandi ástæðum,“ segir Daníel.

Sveiflurnar hafi þó í gegnum tíðina verið ýktari hér en erlendis.

„Ef við horfum aftur til áttunda og níunda áratugarins þá hefur verðbólgan sveiflast mun meira á Íslandi en annars staðar. En frá aldamótum hefur dregið verulega úr þessum sveiflum hér á Íslandi og sérstaklega frá bankahruninu þá hefur verðbólgan í sjálfu sér ekki verið að sveiflast mikið meira en erlendis en hún hefur verið hærri,“ segir Daníel. 

„Helstu viðskiptalönd okkar hafa verið að berjast við að ná verðbólgu uppí markmið en Seðlabankanum hefur tekist ágætlega að halda verðbólgunni stöðugri og nálægt markmiðinu. En svona sögulega séð yfir lengri tímabil hefur verðbólgan verið óstöðugari hér en í okkar helstu viðskiptalöndum en það hefur dregið úr því á síðustu árum.“


Tengdar fréttir

Óttast frekari hækkun verð­bólgu

Fjármálaráðherra og forsætisráðherra segja mikla hækkun verðbólgu að undanförnu mikið áhyggjuefni. Sama staða sé uppi á teningnum úti í heimi en taka verði hækkun hérlendis alvarlega.

Hækkun hús­næðis­lána gæti hlaupið á hundruðum þúsunda á ári

Hækkun húsnæðislána á ársgrundvelli gæti hlaupið á mörg hundruð þúsund krónum nú þegar verðbólga er í hæstu hæðum og hærri stýrivextir yfirvofandi. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að fólk ætti að vera viðbúið því að staðan versni enn frekar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×