Viðskipti innlent

Bein út­sending: Janúar­ráð­stefna Festu 2022

Atli Ísleifsson skrifar
Ráðstefnan stendur milli klukkan 9 og 12.
Ráðstefnan stendur milli klukkan 9 og 12. Festa

Janúarráðstefna Festu 2022 fer fram í dag milli klukkan 9 og 12 en um er að ræða stærsta árlega sjálfbærnivettvangur á Íslandi. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilara að neðan.

Í tilkynningu frá Festu segir að á ráðstefnunni verði ræðufólk í hópi fremstu fræðimanna og leiðtoga á alþjóðasviðinu þegar kemur að sjálfbærni og loftslagsmálefnum.

„Framsögur tveggja heimsþekktra fræðimanna verða sýnd en þau hafa leitt umræðu á alþjóðasviðinu þegar kemur að sjálfbærni og loftslagsmálefnum. Katrin Raworth er höfundur kleinuhringja hagfræðinnar (e. Doughnut Economics), hagfræðilíkan sem leitast eftir því að finna jafnvægi milli grunnþarfa mannkynsins innan þolmarka jarðarinnar (e. Planetery Bounderies). Johan Rockström forstöðumaður Potsdam Institute for Climate Impact Research í Þýskalandi hefur unnið að rannsóknum á þrautseigju vistkerfa jarðar.“

Boðið verður upp á þrjár pallborðsumræður þar sem leiðtogar úr íslensku samfélagi mæta til að ræða þau sjálfbærni málefni sem brenni á okkur öllum. „Með einvalaliði ræðum við hvaða þýðingu sjálfbærni, kleinuhringja hagfræðin og hagvöxtur innan þolmarka jarðar hafa fyrir fjárfestingar, upplýsingagjöf um rekstur fyrirtækja, lög og reglur og orkuskipti um heim allan. Þá leitum við til fulltrúa ungu kynslóðarinnar með endurgjöf,“ segir í tilkynningunni.

Í kjölfar framsagna verða pallborðsumræður þar sem íslenskir fræðimenn og stjórnendur úr atvinnulífinu munu ræða helstu áskoranir á sviði sjálfbærni og loftslagsmála.

  • Hvernig getur fjármagn stuðlað markvisst að sjálfbærri framtíð? - Langtímahugsun og sýn fjárfesta! - Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Frumtak Venture stýrir umræðum.
  • Breytingar á lögum og upplýsingagjöf um sjálfbæran rekstur: Hvað þýðir það fyrir atvinnulífið! Tómas N. Möller, formaður Festu stýrir umræðum.
  • Orkuskipti og hringrásarhagkerfið! - Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Landsbankanum og fulltrúi Festu í Loftslagsráði stýrir umræðum.

Meðal þátttakanda eru;

  • Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA
  • Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar
  • Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnun Sæmundar Fróða
  • Eva Margrét Ævarsdóttir - lögmaður og ráðgjafi á sviði sjálfbærni hjá LEX
  • Halla Hrund Logadóttir Orkumálastjóri




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×