Jól

Marengshringur og jólakonfekt Evu Laufeyjar úr Ísland í dag

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eva Laufey Kjaran gefur hugmyndir fyrir jólin.
Eva Laufey Kjaran gefur hugmyndir fyrir jólin. Stöð 2

Okkar eigin Eva Laufey Kjaran er með jólabakstursþema í þættinum Ísland í dag í kvöld. Sýndi hún þar ótrúlega flottan hátíðar marengshring.

Hér fyrir neðan má finna uppskriftirnar úr Ísland í dag innslagi kvöldsins. 

Hátíðar marengshringur með súkkulaðirjóma og ljúffengri súkkulaðisósu

Marengs hráefni:

  • 6 stk Stk eggjahvítur
  • 300 g sykur
  • 1 ½ tsk mataredik
  • 1 tsk vanilludropar
  • Salt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 100°C.
  2. Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli.
  3. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marengsinn er orðinn stífur.
  4. Búið til nokkra marengshringi á pappírsklæddri ofnplötu sem mynda einn hring.
  5. Bakið marensinn við 100° C í 90 mín.
  6. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marengsinn kólna í ofninum eða yfir nótt eins og ég geri gjarnan.

Súkkulaðirjómi:

  • 120 g hvítt súkkulaði, smátt saxað
  • 100 ml rjómi
  • 500 ml rjómi
  • Fersk ber, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið 100 ml rjóma að suðu og hellið yfir hvítt súkkulaði. Leyfið að standa í 2 – 3 mínútur og hrærið upp í þar til silkimjúkt. Kælið vel.
  2. Þegar blandan er orðin köld setjið hana í hrærivélaskál og bætið 500 ml af rjóma saman við, stífþeytið rjómann.
  3. Setjið rjómann yfir marengskökuna. Skreytið með ferskum berjum og ljúffengri súkkulaðisósu.

After Eight súkkulaðisósa

  • 100 g suðusúkkulaði
  • 70 g After Eight súkkulaði
  • 2 dl rjómi

Aðferð:

  1. Bræðið súkkulaði í rjómanum við vægan hita, ef ykkur finnst sósan of þunn þá bætið þið meira súkkulaði saman við.
  2. Kælið sósuna alveg áður en þið berið hana fram með kökuni.
Stöð 2

Einfalt jólakonfekt:

  • 150 g dökkt súkkulaði
  • 150 g hvítt súkkulaði
  • Bismark brjóstykur

Aðferð:

  1. Byrjum á dökka súkkulaðinu, bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði dreifið því á bökunarpappír og kælið.
  2. Því næst bræðum við hvíta súkkulaðið ofan á dökka súkkulaðið og saxið niður bismark brjóstsykur og dreifið yfir. Kælið mjög vel og brjótið síðan niður í litla bita.

Tilvalið í jólapakkann!

JólakonfektStöð 2


Tengdar fréttir

Jóla­molar: Er ein af þeim fáu sem sendir enn­þá jóla­kort

Það er óhætt að segja að dagskrárgerðarkonan Eva Laufey Kjaran sé ein af þeim sem bakar tvær ef ekki þrjár sortir fyrir jólin. Hún er mikið jólabarn og hefst undirbúningurinn snemma hjá henni. Hún gaf nýlega út sína fjórðu bók, Bakað með Evu, ásamt því að hafa verið að frumsýna aðra þáttaröð af Blindum bakstri síðasta sunnudag en fyrstu þættirnir verða í sérstökum hátíðarbúningi.

Svona gerir þú piparkökuhúsið úr Blindum bakstri

Blindur bakstur fór af stað á sunnudag og fyrstu tveir þættirnir verða sérstakir jólaþættir. Í fyrri þættinum var bakað piparkökuhús og á næsta sunnudag kemur svo í ljós hvað keppendur þurfa að baka í seinni þættinum. 

Marengstoppar með þristabitum – einfaldlega lostæti!

Eva Laufey Kjaran matgæðingur og fjölmiðlakona gaf út nýja bók á dögunum, Bakað með Evu. Í næstu viku fer hún svo aftur af stað með nýja þáttaröð af matreiðsluþáttunum Blindur bakstur.








×