Jól

Jóladagatal Vísis: Fastur á Vesturlandsvegi í tvær klukkustundir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorbjörn Þórðarson vílaði ekki fyrir sér að lýsa aðstæðum á Vesturlandsvegi í óveðrinu.
Þorbjörn Þórðarson vílaði ekki fyrir sér að lýsa aðstæðum á Vesturlandsvegi í óveðrinu.

Tíundi desember er runninn upp og von á miklu hvassviðri og snjókomu víða um land. Óhætt er að segja að landinn sé í startholunum enda búið að gefa út viðvaranir vegna veðurs.

Vísir ætlar að gleðja lesendur sína á aðventunni með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni. Í tilefni óveðursins fá lesendur Vísis að opna tvo glugga í dag en áður hafði verið rifjað upp „makeover“ Láru Ómars í boði Kalla Berndsen og Ásdísar Ránar.

Þann 6. mars árið 2013 var mikið óveður á landinu og myndaðist mikið umferðaröngþveiti á höfuðborgarsvæðinu vegna veðursins. Þorbjörn Þórðarson, þáverandi fréttamaður Stöðvar 2 og lögmaður, stóð vaktina í umferðinni án þess að vera þó mættur í vinnuna. Ástæðan var auðvitað sú að hann komst hvorki lönd né strönd sökum veðurs.

Myndbandið má sjá hér að neðan.








×