Viðskipti innlent

Guð­mundur frá Arion banka til VÍS

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmundur Ólafsson.
Guðmundur Ólafsson. VÍS

Guðmundur Ólafsson hefur verið ráðinn sem nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá VÍS.

Í tilkynningu segir að hann búi yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu ásamt fjölbreyttri stjórnendareynslu úr ólíkum geirum. Síðast hafi hann starfað hjá Arion banka þar sem hann hefur gegnt ýmsum stjórnendastörfum undanfarin fjórtán ár eða frá árinu 2007.

„Má þar helst nefna viðskipta- og vörustjóri Arion Premía, forstöðumaður fyrirtækjatorgs, forstöðumaður rekstrar og þjónustu á fyrirtækjasviði, svæðisstjóri á Norðausturlandi sem og útibússtjóri bankans á Egilsstöðum.

Guðmundur sat einnig í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs, var framkvæmdastjóri Héraðs- og Austurlandsskóga og var sölu- og rekstrarstjóri auglýsingadeildar Norðurljósa sem nú heitir Vodafone.

Guðmundur er með MBA gráðu í stjórnun með áherslu á stafræn viðskipti frá Zigurat Innovation and Technology Business School og Universitat de Barcelona. Hann er einnig með próf í rekstrarfræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hann er jafnframt markþjálfi (e. executive coaching) og með löggildingu í verðbréfamiðlun frá Háskólanum í Reykjavík. Guðmundur hefur nú þegar hafið störf hjá VÍS,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×