Naumt tap Hauka í lokaleik riðlakeppninnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. desember 2021 17:56 Bríet Sif átti frábæran leik í liði Hauka í kvöld. Vísir/Bára Dröfn Haukar töpuðu með sjö stiga mun gegn KP Brno í lokaleik riðlakeppni Evrópubikars kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 60-53.
Haukar höfðu ekki riðið feitum festi í L-riðli Evrópubikarsins enda að spila gegn einkar sterkum mótherjum. Fyrir lokaleik riðilsins höfðu allir fimm leikirnir tapast en eftir fyrsta leikhluta í Tékklandi virtist sem Haukar gætu unnið sinn fyrsta sigur í keppninni. Hafnfirðingar hófu leikinn frábærlega og leiddu með tíu stiga mun að fyrsta leikhluta loknum, staðan þá 25-15 gestunum í vil. Hvað átti sér stað í öðrum leikhluta er óvitað en Haukar skoruðu aðeins fjögur stig en góður varnarleikur þýddi að heimakonur skoruðu aðeins 11, staðan því 29-26 Haukum í vil er flautað var til hálfleiks. Tékkarnir reyndust sterkari í síðari hálfleik og sóknarleikur Hauka náði aldrei sama flugi og í fyrsta leikhluta. Fór það svo að leiknum lauk með sjö stiga sigri Brno, 60-53. Bríet Sif Hinriksdóttir var langstigahæst í liði Hauka með 18 stig. Lovísa Henningsdóttir skoraði átta stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Haiden Palmer skoraði fimm stig, tók 11 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Þá skoraði Elísabeth Ýr Ægisdóttir sex stig og tók 10 fráköst. Helena Sverrisdóttir lék ekki með Haukum vegna meiðsla og munaði um minna. Elísabeth Ýr reif niður tíu fráköst í kvöld.Vísir/Bára Dröfn
Körfubolti Haukar Evrópubikarinn í körfubolta kvenna Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóskassann Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Fleiri fréttir Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Sjá meira