Innlent

Svona er staðan í Grímsvötnum séð úr flugvélinni hjá RAX

Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um tæpa tíu metra og gert er ráð fyrir að hlaup hefjist nú um helgina. Búist er við að hlaupið verði minna en spár gerðu upphaflega ráð fyrir en áfram eru taldar líkur á að gos fylgi í kjölfarið. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Grímsvötn í dag.

Kolbeinn Tumi Daðason og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa
Hlaupvatn undan jöklinum að safnast saman. Vísir/RAX

Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um tæpa tíu metra og gert er ráð fyrir að hlaup hefjist nú um helgina. Búist er við að hlaupið verði minna en spár gerðu upphaflega ráð fyrir en áfram eru taldar líkur á að gos fylgi í kjölfarið. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Grímsvötn í dag.

Rennslið úr Grímsvötnum hefur vaxið hægar en það gerði árið 2010 og er því talið ólíklegt að spár um að hámarksrennsli muni ná fimm þúsund rúmmetrum á sekúndu gangi eftir.

Ríkislögreglustjóri hefur þó í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups. Leiðni og rennsli hafa farið hækkandi í Gígjukvísl sem bendir til þess að vatn úr Grímsvötnum sé byrjað að renna undan jökuljaðrinum.

„Merki um að íshellan í Grímsvötnum væri farin að síga komu fram á miðvikudaginn 24. nóvember síðastliðinn þegar gögn fóru að berast frá Grímsfjalli. Mannvirki eru ekki talin í hættu en hlaupvatnið mun renna undir brúna yfir Gígjukvísl á þjóðvegi 1,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum nú síðdegis.

Fólk er varað við því að fara að upptökum hlaupsins við jökuljaðar vegna hættu á gasmengun.

Flogið yfir Grímsvötn og Skeiðarársand í dag.Vísir/RAX

„GPS mælir veðurstofunnar í Grímsvötnum sýnir að íshellan heldur áfram að síga. Og hefur sigið rúma níu metra eða tæpa tíu metra frá því að hún var í hæstu stöðu. Núna er jarðhitavatn tekið að seitla í Gígjukvísl og vatnshæðin hefur hækkað smám saman í dag. Vatnamælingamenn frá Veðurstofunni eru á leið að Gígjukvísl og munu fylgjast með þróun hlaupsins og meta rennsli en þetta er hægur atburður og verður líklega hægur til að byrja með,“ sagði Einar Hjörleifsson náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Vísir/RAX

Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands gaf í gærkvöldi út nýja rennslisspá en þar segir að út frá því vatni sem nú þegar sé komið undan Grímsvötnum sé ekki ósennilegt að hámarksrennsli verði í kringum fjögur þúsund rúmmetrar á sekúndu. Búast megi við að hlaupið nái toppnum á sunnudag eða aðfaranótt mánudags.

„Við erum með GPS tæki þarna uppi við Grímsvötn, þá sjáum við mjög fljótt þegar íshellan byrjar að lækka mun fyrr en við sáum áður en í sjálfu sér er þetta ekki mjög óvenjulegt Grímsvatnahlaup. Þetta hækkar hægt og rólega og er miklu hægari atburður heldur en til dæmis Skaftárhlaup úr Skaftárkötlum.“

Vísir/RAX

Þá sé gos ekki útilokað þó hlaupið verði að líkindum minna en gert hafi verið ráð fyrir.

„Það er ekki hægt að útiloka að þessi þrýstingsléttir sem verður þarna á Vatnajökli við það að allt þetta vatn rennur niður að það auki líkurnar á að það komi gos úr Grímsvötnum,“ sagði Einar Hjörleifsson náttúruvársérfræðingur.

Fleiri myndir sem RAX tók úr flugvél sinni í dag má sjá að neðan.

Vatn brýst undan Skeiðarárjökli og safnast saman.Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vatn undan jökli safnast saman í litlum lónum.Vísir/RAX

Skeiðarárjökull.Vísir/RAX

Birtan var falleg yfir Grímsvötnum.Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX

Vísir/RAX


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×