Innlent

Aldrei jafn mörg mál til rannsóknar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu aldrei hafa haft eins mörg mál til rannsóknar. 
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu aldrei hafa haft eins mörg mál til rannsóknar.  Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei haft fleiri mál til rannsóknar og afgreiðslutími þeirra er að minnsta kosti helmingi lengri en við teljum æskilegt segir yfirlögregluþjónn. Þá sé alltof algengt að það þurfi að dæma menn í síbrotagæslu.

Í fréttum af innbrotahrinu í höfuðborginni fyrri skömmu sögðust íbúar í ýmsum hverfum gruna að sömu aðilar væru að verki og veltu fyrir sér hvers vegna ekki væri búið að setja viðkomandi aðila í einshvers konar síbrotagæslu. 

Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir að það þurfi að uppfylla ákveðnar lagakröfur til að setja brotamenn í slíka gæslu.

„Ef við erum komin með brotahrinu á viðkomandi einstakling og höfum sterk sönnunargögn gagnvart honum kemur til greina að setja viðkomandi í síbrotagæslu. Það skiptir hins vegar líka málið hversu alvarleg brotin eru og að þegar sé orðið ljóst að viðkomandi fái Óskilorðsbundinn  dóm. Sjálf síbrotagæslan felst svo í gæsluvarðhaldi yfir viðkomandi þar til dómur fellur í máli hans,“ segir Ásgeir.

Hann segir að oft sé um að ræða einstaklinga sem tengjast fíkniefnaheiminum eða skipulagri brotastarfsemi. 

„Það er að mínu mati of algengt að það þurfi að setja fólk í síbrotagæslu. Frá því í haust eru t.d. rannsóknardeildir lögreglustöðvanna búnar að vera með fjóra til sex einstaklinga í síbrotagæslu á hverjum tíma,“ segir Ásgeir. 

Gríðarlegur fjöldi mála

Hann segir að aldrei hafi eins mörg mál borist til rannsóknardeilda lögreglunnar og í ár.

„Þetta eru svona tvöþúsund mál hjá okkur sem er u.þ.b. sex mánaða lager hjá okkur,“ segir hann. 

Hann segir að forgangsraðað sé eftir alvarleika málanna þannig að rannsókn sumra mála taki mun lengri tíma en hálft ár. Ásgeir segir að þetta sé langt í frá óskastaða.

Það væri mjög ákjósanlegt ef lagerstaðan væri þannig að við gætum afgreitt málin á helmingi styttri tíma. Ég þyrfti fleiri hendur til að geta sinnt hlutnum eins og ég myndi vilja hafa þá,“ segir Ásgeir. 


Tengdar fréttir

Íbúa grunar sömu aðila um endurtekin innbrot

Um og yfir tvöfalt fleiri innbrot hafa verið framin inn á heimili í Háaleitis- og Bústaðahverfi á þessu ári en á sama tíma síðustu fimm ár. Þrátt fyrir að íbúar gruni oft sömu aðila um brotin reynist gjarnan erfitt að koma þeim bak við lás og slá. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×