Innlent

Helgi segir sig úr stjórn Ferðafélags Íslands

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Jóhannesson starfaði lengi vel á lögmannsstofunni Lex. Hann var meðal annars verjandi Kio Briggs í frægu sakamáli árið 1999 er varðaði meintan fíkniefnainnflutning og fékk sýknudóm yfir honum.
Helgi Jóhannesson starfaði lengi vel á lögmannsstofunni Lex. Hann var meðal annars verjandi Kio Briggs í frægu sakamáli árið 1999 er varðaði meintan fíkniefnainnflutning og fékk sýknudóm yfir honum. Vísir/Vilhelm

Helgi Jóhannesson, fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá Landsvirkjun, hefur sagt sig úr stjórn Ferðafélags Íslands. Það gerði hann í morgun og var nafn hans fjarlægt af heimasíðu félagsins í framhaldinu.

Stundin greindi frá því í morgun að Helgi hefði hætt störfum sem yfirlögfræðingur Landsvirkjunar á dögunum í kjölfar þess að fá formlega áminningu í starfi fyrir hegðun gagnvart samstarfskonu.

Stundin hefur eftir heimildarmönnum að alvarlegasta atvikið hafi átt sér stað í vor, þegar Helgi á að hafa króað konuna af úti í horni og strokið kinn hennar gegn vilja hennar. Þá á Helgi að hafa sagt ítrekað við konuna að hún væri lesbíuleg eftir að hafa klippt hár sitt stutt.

Þessi breyting var gerð á stjórn Ferðafélags Íslands á vef félagsins í morgun.

Þá kom fram að í starfi hans sem yfirlögfræðingur Landsvirkjunar hafi meðal annars falist að sjá um formlegar áminningar í starfi, sem hann fékk sjálfur.

Anna Dóra Sæþórsdóttir, forseti Ferðafélags Íslands, segir Helga hafa sagt af sér sem stjórnarmaður í morgun. Málið sé ofsalega leiðinlegt frá öllum aðilum séð. Nýr stjórnarmaður verði kosinn á næsta aðalfundi félagsins á nýju ári.

Helgi er mikill útivistarmaður og er menntaður leiðsögumaður. Hann hefur verið virkur í starfi Ferðafélags Íslands undanfarin ár. Ekki náðist í Helga við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×