Enski boltinn

Verð­skuldað tap gegn West Ham og heppni að fyrsta tap tíma­bilsins kom ekki fyrr

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik West Ham og Liverpool um helgina.
Úr leik West Ham og Liverpool um helgina. Mike Hewitt/Getty Images

Þó Liverpool hafi byrjað tímabilið frábærlega og ekki tapað leik fyrr en það heimsótti West Ham United um helgina þá hefur félagið lifað á lyginni undanfarnar vikur.

James Pearce, sérstakur Liverpool-penni The Athletic, fjallaði um 3-2 tap Liverpool í Lundúnum um helgina. 

Þó svo að Jürgen Klopp, þjálfari liðsins, hafi kvartað sáran yfir ósanngjörnum dómara að leik loknum vill Pearce meina að liðið hafi fengið nákvæmlega það sem það átti skilið.

Veikleikar liðsins varnarlega voru opinberaðir, miðjan bauð ekki upp á næga vörn gegn vel skipulögðu liði heimamanna, leikmenn Liverpool fylgdu ekki mönnunum sínum og boltanum var ítrekað tapað á hættulegum svæðum. 

Þá skoraði West Ham úr tveimur hornspyrnum og átti skalla í slá úr þeirri þriðju.

Liverpool hefur spilað vel það sem af er tímabili enda er liðið nú þegar búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, komið í 8-liða úrslit deildarbikarsins og aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Chelsea. 

Liðið hefur hins vegar verið berskjaldað á síðustu vikum og aðeins spurning hvenær mótherji myndi nýta sér það.

Kurt Zouma skoraði þriðja mark West Ham um helgina.Alex Pantling/Getty Images

Í september var liðið 2-1 og 3-2 yfir gegn nýliðum Brentford en leiknum lauk með 3-3 jafntefli. Sömu sögu er að segja gegn Englandsmeisturum Manchester City á Anfield, Liverpool komst í 1-0 og 2-1 en leiknum lauk með jafntefli.

Liverpool missti niður 2-0 forystu gegn Atlético Madríd á útivelli en tókst að skora sigurmark eftir heimamenn misstu mann af velli. Þá er aðeins rétt rúm vika síðan liðið var 2-0 yfir gegn Brighton & Hove Albion en missti leikinn niður í jafntefli.

Liverpool fær sjóðandi heitar Skyttur í heimsókn eftir landsleikjahléið og ljóst að lærisveinar Klopp þurfa að vera á tánum ef ekki á illa að fara gegn Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×