Handtóku einn af heimildarmönnum Steele-skýrslunnar um Trump Samúel Karl Ólason skrifar 4. nóvember 2021 16:00 Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagði ítrekað að rannsóknir á mögulegum tengslum hans og framboðs hans við ríkisstjórn Rússlands væru nornaveiðar. EPA/JIM LO SCALZO Alríkislögregumenn handtóku í dag greinanda sem safnaði gögnum sem notuð voru í að skrifa umdeilda skýrslu um möguleg tengsl Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við yfirvöld í Rússlandi.
Handtaka greinandans, sem heitir Igor Danchenko, er til komin vegna rannsóknar John H. Durham, sem skipaður var af ríkisstjórn Trumps til að rannsaka uppruna Rússannsóknarinnar svokölluðu. Danchenko safnaði gögnum sem notuð voru í Steele-skýrsluna svokölluðu en hún innihélt frásagnir af sögusögnum og ósönnuðum staðhæfingum um að Trump og framboð hans hefði verið í slagtogi við stjórnvöld í Rússlandi í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Washington Post segir Danchenko hafa verið einn helsta heimildarmann Steele. Skýrsluna tók hann saman fyrir rannsóknafyrirtækið Fusion GPS sem hafði verið ráðið til að rannsaka tengsl Trump við Rússland, fyrst af andstæðingum Trump í forvali Repúblikanaflokksins en síðar af landsnefnd Demókrataflokksins. Laug að rannsakendum FBI New York Times segir frá handtökunni en í nýopinberaðri ákæru kemur fram að Danchenko er sakaður um að hafa logið að rannsakendum Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI). Í ákærunni, sem er í fimm liðum, er Danchenko sagður hafa logið um tvær manneskjur. Annars vegar er hann sagður hafa logið um samskipti sín við aðila sem var virkur í starfsemi Demókrataflokksins og notast við upplýsingar frá þeim aðila í gögnunum sem hann sendi Steele. Þá er hann sagður hafa logið að FBI-liðum um símtal sem hann sagðist hafa fengið frá rússneskum aðila um tengsl Trumps við Rússland. Í ákærunni segir að það símtal hafi aldrei átt sér stað. Umdeild skýrsla Hlutar Steele-skýrslunnar voru notaðir í umsókn FBI um hlerunarheimild gagnvart fyrrverandi starfsmanni framboðs Trumps. Aðrir hlutar hennar, og þar á meðal frásögn af Trump með vændiskonum í Moskvu, ollu miklu fjaðrafoki vestanhafs. Stórir hlutar skýrslunnar hafa aldrei verið sannaðir og sumir hafa reynst ósannir. Þeir hlutar skýrslunnar sem þóttu mikilvægastir komu frá Danchenko. Christopher Steele, sem starfaði áður í leyniþjónustu Bretlands og sérstaklega um málefni Rússlands, skrifaði skýrsluna. Notaði hann meðal annars gögn frá Danchenko. Innri endurskoðandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins gagnrýndi starfsmenn FBI í skýrslu árið 2019, fyrir það sérstaklega að hafa vísað í gögn úr Steele-skýrslunni. Það hafi verið gert þó að Danchenko hafi í viðtölum við FBI dregið úr trúverðugleika skýrslunnar. Þá kom fram í skýrslu endurskoðandans að áratug áður hafði Danchenko verið til rannsóknar vegna gruns um að hann væri útsendri leyniþjónusta Rússlands. Rannsökuðu fyrst afskipti Rússa Rússarannsókn Robert Mueller, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, snerist upphaflega um afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016. Svo snerist hún einnig um hvort starfsmenn framboðs Trump hafi átt í samstarfi við Rússa og hvort Trump hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar, meðal annars með því að reka James Comey, fyrrverandi yfirmann Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Forsetinn sagði svo í sjónvarpsviðtali skömmu seinna að hann hefði gert það vegna Rússarannsóknarinnar. Upprunalega var rannsóknin á höndum Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Það var eftir að sendiherra Ástralíu gerði bandarískum yfirvöldum viðvart um að George Papadopoulos, utanríkismálaráðgjafi framboðs Trump, sagði sér á krá í London að Rússar byggju yfir fjölda tölvupósta Hillary Clinton. Það var áður en póstarnir voru birtir af Wikileaks og vitað var að rússneskir hakkarar hefðu stolið þeim af landsnefnd Demókrataflokksins. Sjá einnig: Yfirheyrðu höfund umdeildrar skýrslu um Trump í sextán tíma Sérstakur rannsakandi var skipaður eftir að í ljós kom að Jeff Sessions, þáverandi dómsmálaráðherra, hafði sagt ósatt um samskipti sín við sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum. Mueller staðfesti mat leyniþjónustu Bandaríkjanna að rússnesk stjórnvöld hafi reynt að hafa áhrif á kosningarnar og tryggja Trump sigur. Ekkert samráð Rannsóknin leiddi ekki ljós glæpsamlegt samráð við Rússa en Trump forseti var þó ekki sýknaður af því að hafa staðið í vegi fyrir því að réttlætið næði fram að ganga, þó hann hafi ítrekað haldið því fram. 34 einstaklingar voru ákærðir vegna rannsóknarinnar og fyrir ýmsa glæpi. Þar á meðal eru sex fyrrverandi bandamenn og ráðgjafar Trump eins og fyrrverandi kosningastjóri hans, aðstoðarkosningastjóri, þjóðaröryggisráðgjafi og persónulegur lögmaður hans. Í stjórnartíð Trumps var John Durham gert að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar.AP/Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna Auk þess var hópur rússneskra starfsmanna „Tröllaverksmiðjunnar“ svokölluðu og aðrir ákærðir fyrir afskipti þeirra af kosningunum. Sjá einnig: Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg William Barr, fyrrverandi dómsmálaráðherra, skipaði John Durham árið 2019 að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar en seinna það ár var rannsókn Durhams svo skilgreind sem sakamálarannsókn. Fyrir daginn í dag hafði rannsókn Durham leitt til þess að lögmaður sem tengist Demókrataflokknum var ákærður fyrir að ljúga að rannsakendum FBI og fyrrverandi lögmaður FBI viðurkenni að hafa breytt tölvupósti í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á fyrrverandi starfsmanni framboðs Trumps.
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Tengdar fréttir Leita í húsum sem tengjast rússneskum ólígarka Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) leituðu í dag í húsum í Washington DC og New York sem sögð eru tengjast rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska. Atlagan tengist rannsókn FBI en yfirvöld Bandaríkjanna hafa beitt Deripaska refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. 19. október 2021 19:12 Ríkisstjórn Trump fékk gögn um símanotkun blaðamanna Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í forsetatíð Donalds Trump fékk á laun gögn um símanotkun blaðamanna Washington Post í tengslum við umfjöllun þeirra um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016. Það reyndi ennfremur að komast yfir upplýsingar um tölvupósta blaðamannanna. 8. maí 2021 14:49 Teikna beina línu frá framboði Trumps til Rússa Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, opinberaði í gær að samstarfsmaður starfsmanna framboðs Donalds Trump, fyrrverandi forseta, útvegaði rússneskum leyniþjónustum gögn úr framboðinu. 16. apríl 2021 23:34 Dómsmálaráðherrann hættir skömmu fyrir embættistöku Bidens Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nú í kvöld að William Barr, dómsmálaráðherra, væri að hætta í starfi sínu. Í tísti segir Trump að Barr vilji hætta, einungis fimm vikum áður en starfstímabil hans rennur út, til að verja hátíðunum með fjölskyldu sinni. 14. desember 2020 23:14 Ákæra rússneska hermenn fyrir skæðar tölvuárásir Þeir eru ákærðir fyrir nokkrar alræmdar tölvuárásir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. 19. október 2020 19:03 Mest lesið Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira
Leita í húsum sem tengjast rússneskum ólígarka Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) leituðu í dag í húsum í Washington DC og New York sem sögð eru tengjast rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska. Atlagan tengist rannsókn FBI en yfirvöld Bandaríkjanna hafa beitt Deripaska refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. 19. október 2021 19:12
Ríkisstjórn Trump fékk gögn um símanotkun blaðamanna Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í forsetatíð Donalds Trump fékk á laun gögn um símanotkun blaðamanna Washington Post í tengslum við umfjöllun þeirra um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016. Það reyndi ennfremur að komast yfir upplýsingar um tölvupósta blaðamannanna. 8. maí 2021 14:49
Teikna beina línu frá framboði Trumps til Rússa Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, opinberaði í gær að samstarfsmaður starfsmanna framboðs Donalds Trump, fyrrverandi forseta, útvegaði rússneskum leyniþjónustum gögn úr framboðinu. 16. apríl 2021 23:34
Dómsmálaráðherrann hættir skömmu fyrir embættistöku Bidens Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nú í kvöld að William Barr, dómsmálaráðherra, væri að hætta í starfi sínu. Í tísti segir Trump að Barr vilji hætta, einungis fimm vikum áður en starfstímabil hans rennur út, til að verja hátíðunum með fjölskyldu sinni. 14. desember 2020 23:14
Ákæra rússneska hermenn fyrir skæðar tölvuárásir Þeir eru ákærðir fyrir nokkrar alræmdar tölvuárásir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. 19. október 2020 19:03