Þórsarar lögðu Sögu

Snorri Rafn Hallsson skrifar
þór saga

Það var spenna í loftinu þegar lið Sögu og Þórs mættust í Dust 2 kortinu í gærkvöldi. Lið Sögu samanstendur að stórum hluta úr þeim leikmannahópi sem lék undir merkjum Þórs á síðasta tímabili og hlökkuðu þeir til að mæta sínum gamla liðsfélaga Rean, sem fer fyrir nýja Þórsliðinu. Saga hefur einungis unnið einn leik á tímabilinu en engu að síður hefur liðinu tekist að sýna hvað í þeim býr. Liðið hefur mætt erfiðum andstæðingum hingað til en gert heiðarlega tilraun til að standa uppi í hárinu á þeim og gefast ekki upp. Þórsarar eru aftur á móti í góðri stöðu á toppnum en í síðustu umferð lagði liðið XY 16-2.

Saga hafði betur í hnífalotunni og fékk því að byrja leikinn í vörn (Counter-Terrorists). Það fór þó ekki vel af stað hjá þeim þar sem Allee, leikmaður Þórs var smellhittinn og felldi 8 andstæðinga í fyrstu þremur lotunum og Þór komst auðveldlega í 4-0. Þá tókst Sögu að krækja sér í sína fyrstu lotu með fallegri fléttu en fljótlega sigldi Þór enn lengra fram úr. Þórsarar voru beittir og ekkert gekk hjá Sögu að stoppa upp í götin í vörninni hjá sér og átti Þór því greiðan aðgang að sprengjusvæðunum. 

Staða í hálfleik: Þór 11 - 4 Saga

Leikmenn Sögu eiga hrós skilið fyrir hvernig þeim tókst að snúa leik sínum við í síðari hálfleik. Þrátt fyrir að vera í arfaslakri stöðu var engan bilbug á þeim að finna og sjá má merki þess að liðið sé að bæta sig í hverjum einasta leik sem það spilar. Í síðari hálfleik nýtti Saga sér eiginleika Dust 2 kortsins sem er opið og krefst ekki alveg eins mikils aga og skipulags og önnur kort eiga það til að gera. Liðið reiddi sig á ADHD sem bjó til mikið pláss fyrir snarpar aðgerðir og hefur ábyrgðinni á opnunum verið létt af Pandaz og dreift á fleiri leikmenn. Þannig vann Saga fimm lotur í röð og staðan orðin öllu álitlegri, 12-9, eftir tuttugu og eina lotu. Þórsarar juku forskot sitt þá aðeins, en þó mátti litlu muna að leikar snerust Sögu enn frekar í vil í tuttugustu og sjöttu lotu, en þá tókst Rean að bjarga leiknum fyrir horn og stóðu Þórsarar því uppi sem sigurvegarar.

Lokastaða: Þór 16 - 13 Saga

Næst leikur Saga gegn Kórdrengjum þann 19. nóvember en þá mæta Þórsarar Dusty. Sannkallaðir topp- og botnslagir þar á ferðinni. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Þór skildi XY eftir í sárum

Gríðarsterkt lið Þórs vann stærsta sigur í Vodafonedeildinni í CS:GO hingað til þegar liðið pakkaði XY saman 16-2.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira