Skoðun

Grænþvottur og hrognkelsi

Elvar Örn Friðriksson skrifar

Þessa dagana keppist laxeldisiðnaðurinn við það klappa sjálfum sér á bakið. Reynt er að sannfæra landsmenn um það að sjókvíaeldi standi fyrir sjálfbæra, umhverfisvæna og græna framtíð. Þemað í flestum greinum um sjókvíaeldið þessa dagana er að við Íslendingar munum gera þetta svo vel og þetta mun allt verða í lagi hér þó svo að alls staðar annars staðar hafi iðnaðurinn skilið eftir sig visna náttúru og erfðablandaða laxastofna.

Sem dæmi má nefna að þann 27. október birtust að minnsta kosti 10 aðkeyptar lofgreinar um fiskeldi í fjölmiðlum landsins. Það er þekkt aðferð hjá iðnaði sem hefur slæman málstað að verja að hreinlega kaupa sér pólitísk völd og jákvæða umfjöllun.

Það var sérstaklega tvennt sem vakti athygli í þessum lofgreinum. Annars vegar var það umfjöllun um aukningu í ræktun á hrognkelsi og hins vegar fullyrðing framkvæmdastjóra Benchmark Genetics um að kynbætti norski eldislaxinn þeirra væri „einn heilbrigðasti laxastofn í heimi“.

Byrjum á hrognkelsunum. Það er mikilvægt að átta sig á því að hrognkelsin eru einungis ræktuð til þess að éta laxalús af eldislöxum og síðan drepast. Þó að aukin ræktun á hrognkelsi sé ánægjuefni fyrir Benchmark Genetics og fjárhag þeirra, þá nær það ekki lengra en það. Aukin ræktun hrognkelsa þýðir aðeins eitt, laxalúsin í sjókvíaeldinu er að færast í aukana. Þrátt fyrir það að helstu sérfræðingar iðnaðarins héldu því staðfastlega fram á sínum tíma að laxalúsin yrði aldrei vandamál hér. Eftir því sem umfang sjókvíaeldis eykst, þá aukast neikvæðu fylgikvillar þess. Að setja það í þetta jákvæða ljós er eins og að segja að það sé jákvætt að sala sýklalyfja hafi aukist með haustkvefinu.

Í stuttu máli er þetta svona:

Laxalúsin étur laxinn lifandi ➡️ Hrognkelsið étur laxalúsina ➡️ hrognkelsið drepst í kvíunum ➡️ og við étum svo laxinn, verkaðann og snyrtilegan með engin sjáanleg ummerki um neitt af þessu. Sannarlega ekki gleðitíðindi fyrir neinn (nema fyrir Benchmark Genetics).

Þá komum við að fullyrðingunni mögnuðu „einn heilbrigðasti laxastofn í heimi“. Það er ekkert annað en móðgun við allt villt og náttúrulegt að segja að kynbættur norskur eldislax sé „einn heilbrigðasti laxastofn í heimi“. Vísindasamfélagið er sammála um það að það er einmitt þessi lax sem er helsta ógnin við hina villtu laxastofna. Eldislaxinn sleppur úr kvíum og syndir upp í ár með náttúrulega stofna, hrygnir og erfðablandast þannig villtum stofnum sem hafa aðlagast náttúrulega umhverfi sínu síðan á síðustu ísöld. Sjókvíaeldi og eldislaxinn sem þar er notaður mun verða til þess að villtir laxastofnar verða „óheilbrigðir“ og munu á endanum deyja út.

Látum ekki sefjandi umfjöllun mengandi iðnaðar blekkja okkur. Sjókvíaeldi er úrelt og mun skilja eftir sig hörmungarsögu fyrir náttúru og vistkerfi.

Höfundur er framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×