Handbolti

Skoraði tíu mörk í fyrsta deildarleiknum með íslensku liði í rúmlega 4.500 daga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar Kárason lék lengi með landsliðinu og fór með því á nokkur stórmót.
Rúnar Kárason lék lengi með landsliðinu og fór með því á nokkur stórmót. vísir/andri marinó

Rúnar Kárason lék sinn fyrsta deildarleik fyrir íslenskt lið í rúm tólf ár þegar ÍBV vann Víking, 27-30, í 1. umferð Olís-deildarinnar í gær.

Þetta var fyrsti deildarleikur Rúnars með íslensku liði síðan í lokaumferð N1-deildarinnar 5. apríl 2009. Hann skoraði þá sjö mörk í 28-28 jafntefli Fram og Akureyrar fyrir norðan. Síðan eru liðin tólf ár og fimm mánuðir, eða nánar tiltekið 4548 dagar.

Fram endaði í 4. sæti deildarinnar og mætti Haukum í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Fram vann fyrsta leikinn en Haukar næstu tvo og tryggðu sér sæti í úrslitunum. 

Rúnar lék sinn síðasta leik fyrir Fram þegar liðið tapaði með níu marka mun fyrir Haukum á Ásvöllum, 30-21, 23. apríl 2009. Rúnar skoraði eitt mark í leiknum. Meðal samherja hans í Fram á þessum tíma voru Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, Róbert Aron Hostert og Einar Rafn Eiðsson, sem eru enn að, og Andri Berg Haraldsson. Sá síðastnefndi er aðstoðarþjálfari Víkings sem mætti ÍBV í gær. Sonur Andra, Jóhannes Berg, er örvhent skytta í liði Víkings og skoraði fimm mörk í leiknum í gær.

Eftir tímabilið 2008-09 fór Rúnar til Füchse Berlin sem var á þeim tíma undir stjórn Dags Sigurðssonar. Rúnar lék í Þýskalandi til 2018 þegar hann gekk í raðir Ribe-Esbjerg í Danmörku. Þar lék hann í þrjú ár áður en hann sneri heim í sumar og samdi við ÍBV.

Rúnar lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir ÍBV þegar liðið tapaði fyrir Aftureldingu, 29-28, í síðustu viku. Hann skoraði sex mörk í leiknum.

Stórskyttan lék svo fyrsta deildarleikinn fyrir ÍBV í Víkinni í gær. Eyjamenn áttu í vandræðum gegn baráttuglöðum nýliðum Víkinga en náðu að landa sigri. Rúnar átti ekki lítinn þátt í því en hann skoraði níu mörk í tíu skotum í seinni hálfleik. Rúnar endaði með tíu mörk í þrettán skotum og gaf auk þess þrjár stoðsendingar.

Næsti leikur Rúnars og félaga er gegn Stjörnunni í Garðabænum á miðvikudaginn. Fyrsti heimaleikur Eyjamanna er svo gegn KA-mönnum sunnudaginn 10. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×