Viðskipti innlent

Kaupa allt hluta­fé í ís­lenska sprota­fyrir­tækinu Sea Data Center

Eiður Þór Árnason skrifar
Oddvar Husby og Thomas Brevik, framkvæmdastjórar gagnavísinda og vöruferilsstjórnunar hjá Maritech.
Oddvar Husby og Thomas Brevik, framkvæmdastjórar gagnavísinda og vöruferilsstjórnunar hjá Maritech. Aðsend

Norska hugbúnaðarfyrirtækið Maritech hefur fest kaup á öllu hlutafé í íslenska sprotafyrirtækinu Sea Data Center, sem rekur upplýsingaveitu fyrir sjávarútveg.

Maritech keypti um helmingshlut í félaginu árið 2019 sem varð í kjölfarið umboðsaðili fyrir Maritech á Íslandi. Í kjölfar kaupanna verður Sea Data Center hluti af Maritech Iceland, dótturfélagi norska fyrirtækisins sem er eitt það stærsta á sviði hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútveg,

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Maritech þar sem Sea Data Center er lýst sem leiðandi alþjóðlegri upplýsingaveitu fyrir sjávarútveginn. Gagnavísindi eru sögð eitt af helstu áherslusviðum móðurfyrirtækisins sem líti á þetta sem mikilvæga fjárfestingu sem muni styðja við vöruframboð Maritech og gera það einstakt á heimsvísu.

Sea Data Center var stofnað árið 2018 en starfsemin hafði áður verið rekin af greiningardeild ráðgjafarfyrirtækisins Markó Partners. Í upplýsingaveitu félagsins má meðal annars finna nýjustu upplýsingar um þróun á mörkuðum, útflutningsverð og smásöluverð hjá verslanakeðjum. Þar er líka að finna upplýsingar um veiði og kvótanýtingu auk greiningar og tengla á sjávarútvegsfréttir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×