Tónlist

Katrín Halldóra syngur lög Jóns Múla á fyrstu sólóplötunni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Katrín Halldóra Sigurðardóttir skrifaði undir samning við Þjóðleikhúsið fyrr í sumar.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir skrifaði undir samning við Þjóðleikhúsið fyrr í sumar. Aðsent

Söng- og leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir vinnur nú að útgáfu á sólóplötu sem kemur út í október. Upptökur fara fram 16. og 17.ágúst í Stúdíó Sýrlandi. 

Á plötunni syngur hún lög Jóns Múla í glænýjum útsetningum eftir Hauk Gröndal. Samstarf Katrínar Halldóru og Hauks hófst á jazzhátíð árið 2018 þar sem flest þessara laga voru útsett og flutt á tónleikum. Nú hafa nokkur lög bæst við síðan þá og því var ákveðið að loka hringnum og gefa þau út á plötu í tilefni þess að Jón Múli hefði orðið hundrað ára í ár svo þetta er i raun heiðursplata.

„Lög Jóns Múla við texta bróður hans Jónasar Árnasonar eru í sérstöku uppáhaldi, þetta eru lög úr vinsælum leiksýningum eða „söngdansar“ eins og Jón Múli kallaði lögin sem mörg hver eru orðin ein þekktustu dægurlög þjóðarinnar,“ segir Katrín Halldóra. Hún hefur sjálf sungið þessi lög síðan hún man eftir sér.

Páll Óskar syngur með söngkonunni tvo dúetta á plötunni, þau hafa áður sungið saman og það kemur alltaf einstaklega vel út þar sem raddir þeirra passa fullkomlega saman.

Margir hafa beðið spenntir eftir nýju efni frá Katrinu Halldóru og má því með sanni segja að mikil eftirvænting ríki eftir plötunni sem kemur út i október og verður henni fylgt eftir með útgáfutónleikum sem verða auglýstir á næstu misserum.

Hljómsveitina skipa Ásgeir J. Ásgeirsson á gítar, Birgir Steinn Theódórsson á bassa, Eric Quick, á trommum, Haukur Gröndal á saxafóna og klarínett, Hjörtur Ingvi Jóhansson á píanó, Ólafur Jónsson á saxafóna og klarínett og Snorri Sigurðsson á trompet.


Tengdar fréttir

Katrín Halldóra syngur Ó, helga nótt

Borgarleikhúsið hefur boðið landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember hefur verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins glatt með fjölbreyttum atriðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×