Atvinnulíf

Aftur til vinnu eftir frí: Sex góð ráð

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það getur verið þrælerfitt að mæta aftur til vinnu eftir gott sumarfrí.
Það getur verið þrælerfitt að mæta aftur til vinnu eftir gott sumarfrí. Vísir/Getty

Eftir dásamlegt frí, jafnvel sólardaga, er komið að því: Við þurfum að byrja aftur að vinna! Og þá gildir um marga að fá smá hnút í magann. Finna jafnvel til þess að „nenna” varla. Þótt við séum almennt ánægð í vinnunni okkar.

Enda engin von: Stundum erum við hálf þreytt eftir fríin okkar (já það er staðreynd!) og oft erum við bara svo afslöppuð og sæl að við varla tímum að slá af sælunni.

Oooooh.... já, þetta getur verið erfitt.

En í þessu eru auðvitað til góð ráð eins og í svo mörgu öðru og hér eru nokkur:

1. Taktu þér frí eftir fríið (ef þú getur)

Mörg okkar nýta fríið til að ferðast og fyrir hertar sóttvarnarreglur voru margir á ferð og flugi.

Við áttum líka góða verslunarmannahelgi.

En oft erum við þreytt eftir frí þannig að ef þú mögulega getur skipulagt fríið þitt þannig að þú náir að minnsta kosti einum frídegi heima við, áður en þú byrjar að vinna, þá er það oft gott.

Tveggja daga frí heima við eftir frí væri jafnvel enn betra.

Því þá náum við að ganga frá öllu heima, versla inn og koma heimilinu í stand í rólegheitunum. Náum að njóta þess aðeins og slappa af. 

Ef þetta er ekki í boði í þetta sinn og þú finnur samt að frí heima við eftir fríið hefði verið kærkomið, mundu þá þetta atriði fyrir næsta ár.

2. Að auðvelda sér fyrsta vinnudaginn

Í stað þess að mæta til vinnu og demba sér af stað í verkefni er ágætt að ákveða fyrirfram að fyrsta morguninn í vinnunni ætlar þú að gefa þér smá tíma í næði til að vinna að mjög góðum verkefnalista.

Þar skráir þú ekki aðeins verkefni dagsins, heldur vandar þig sérstaklega við að forgangsraða og taka ákvörðun um hvað nákvæmlega þú þarft að gera þennan fyrsta dag.

Ágætis ráð er að byrja á því að skoða þau verkefni sem þú náðir ekki að klára fyrir frí. Því það að gleyma sér við verkefni sem við vorum að vinna að fyrir sumarfríið, hjálpar huganum að koma sér í vinnugírinn á ný.

Ekki ráðast í of stór eða viðamikil verkefni fyrsta vinnudaginn. Kláraðu frekar einfaldari og fljótlegri verkefni. Leyfðu þér að taka fyrsta vinnudaginn í smá hænuskrefum.

3. Smá „dash” af fríinu með í vinnuna

Eins og í góðum uppskriftum er ekki vitlaust að taka með sér smá ,,dash” af sumarfríinu í vinnuna.

Í gegnum árin hefur það til dæmis verið vinsælt víða á vinnustöðum að koma með fríhafnarnammi fyrir vinnufélaga fyrsta daginn eftir frí.

Á tímum Covid á þetta minna við.

En auðveld leið til að leyfa okkur að njóta svolítið minninga úr fríinu er að sýna vinnufélögum nokkrar myndir í símanum eða skoða nokkrar myndir sjálf. 

Því rannsóknir hafa sýnt að það að leyfa okkur að fá smá nasaþef af fríinu þegar að við mætum aftur til vinnu, gefur okkur vellíðunar- og ánægjutilfinningu. Sem aftur gefur okkur orku og aukna afkastagetu.

4. Spjallaðu við vinnufélagana

Mjög líklega munu einhverjir vinnufélagar spyrja þig hvernig fríið hjá þér var. Taktu vel á móti þessum spurningum og njóttu þess að segja frá. Helst í gamansömum tón og á jákvæðum nótum. Því þannig spjall eykur ánægju- og gleðitilfinninguna okkar.

Hlustaðu líka á sumarfríssögur vinnufélaganna þinna og spurðu hvernig þeim fannst fríið.

Því almennt gildir að fólki finnst gaman að segja frá sumarfríinu sínu þegar það mætir aftur til vinnu.

Spjall sem þetta eykur á ný tengslin okkar við vinnufélaga og vinnustaðinn.

5. Nýju vinnugleraugun

Eitt það besta við góð sumarfrí er að það er bæði gott fyrir þig og gott fyrir vinnuveitandann. Því það að ná góðri hvíld skilar okkur ekki bara til baka sem úthvíldum og ánægðum starfsmönnum heldur gerir hvíldin það að verkum að við fáum oft nýjar og ferskar hugmyndir.

Að mæta aftur til vinnu og vera meðvituð um að vera með ný vinnugleraugu á nefinu eftir gott frí og góða hvíld, þýðir í raun að okkur gæti hreinlega dottið eitthvað nýtt í hug eða að eitthvað sem áður virtist flókið er það ekki lengur. 

Vertu opin/n fyrir því að leyfa þessum hugmyndum að koma til þín.

6. Og loks eru það pásurnar

Eftir gott frí er mjög mikilvægt að ofkeyra sig ekki strax á fyrsta vinnudegi. Það er streituvaldandi og líklegt til að hafa áhrif á það hvernig þú mætir til vinnu á degi númer 2, 3 og svo framvegis.

Að gíra sig upp í stress og streitu er svo sannarlega ekki rétta leiðin til að mæta aftur til vinnu eftir gott sumarfrí. Hvorki fyrir þig né vinnuveitandann og þá ekki síst á tímum Covid þegar áhyggjurnar eru jafnvel fleiri og meiri en nokkru sinni fyrr.

Mundu því eftir að taka þér regluleg hlé frá vinnu í dag.


Tengdar fréttir

Að hvetja okkur til dáða í vinnu: Segðu hlutina upphátt!

Það er með ólíkindum hvernig okkur tekst að rífa okkur niður í huganum. Eða gera lítið úr okkur. Ef okkur gengur til dæmis mjög vel í vinnunni og náðum að afkasta miklu, erum við samt meira með hugann við verkefnin sem við náðum EKKI að klára frekar en að vera ánægð með allt sem við þó gerðum!

Að vinna of mikið er í orðsins fyllstu merkingu að drepa okkur

Í nýlegri grein BBC er sagt frá niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar sem sýna að sífellt fjölgar í þeim hópi fólks sem deyr of ungt í kjölfar of mikillar vinnu. Greinin ber yfirskriftina „How overwork is literally killing us.“ Ótímabært dauðsfall sem afleiðing af of mikilli vinnu, er algengara hjá körlum en konum. 

Um yfirmanninn sem truflar mann stöðugt

Það getur verið erfitt að eiga samstarfsfélaga sem trufla mann mikið við vinnu. En þegar það er yfirmaðurinn sem er stanslaust að trufla, geta málin virst nokkuð flóknari að takast á við. Því hvernig er hægt að biðja yfirmanninn um að hætta, eða draga úr því, að trufla svona mikið?





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×