Í kæru sinni til lögreglu segir Arnar að stjórnendur ÁTVR hafi haft „horn í síðu“ franska félagsins Santewines SAS allt frá því að fyrirtækið hóf sölu áfengis í netverslun sinni í maí. Áður hafði Arnar krafist þess að kærur ÁTVR yrðu dregnar til baka og afsökunarbeiðni birt í helstu fjölmiðlum.
Í kæru ÁTVR til lögreglu og Skattsins er franska félagið sakað um stórfelld skattalagabrot með því að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti. Þá er fullyrt að félagið hafi ekki virðisaukaskattsnúmer eða heimild til að innheimta virðisaukaskatt hér á landi.
ÁTVR borið fram kæru gegn betri vitund
Arnar segir ásakanirnar eiga sér „enga stoð í raunveruleikanum.“ Franska félagið hafi fengið skráða kennitölu og virðisaukaskattsnúmer í apríl, áður en netverslunin hóf starfsemi.
„Aukinheldur var virðisaukaskattur Santewines SAS ekki fallinn í gjalddaga og því augljóst hverjum sem er, að alls ómögulegt að virðisaukaskatti hefði verið skotið undan. Má því ljóst telja að kærði hafi borið fram kæru sína gegn betri vitund, til þess eins að fá kærða sakaðan um refsiverðan verknað,“ segir í kæru Arnars til lögreglu.
„Má ljóst telja að með kæru [Ívars] til lögreglu og skattayfirvalda hafi kærði með rangri kæru leitast við að koma því til leiðar að undirritaður, saklaus maður, yrði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað,“ kemur fram í kærunni.

Um að ræða málamyndagjörning
ÁTVR hefur áður fullyrt að starfsemi Santewines feli í sér brot á einkaleyfi fyrirtækisins á sölu og afhendingu áfengis í smásölu. Viðskiptavinir Santewines geta keypt vörur af franska fyrirtækinu og fengið þær sendar heim eða á afhendingarstaði beint úr vöruhúsi netverslunarinnar á Íslandi. Íslendingum er heimilt að kaupa áfengi í erlendum netverslunum.
ÁTVR segir í kæru sinni að viðskiptin sem franska félagið Santewines SAS bjóði upp á sé „augljós málamyndagjörningur.“
Fullyrt er að vínið sem selt sé til neytenda sé flutt inn af hinu íslenska Sante ehf. en svo selt áfram til Santewines SAS sem selji það svo áfram í gegnum verslun sína. Í millitíðinni flytjist vínin hins vegar ekki milli landa og séu vistuð á sama lagernum sem staðsettur er hér á landi.
Ekkert bendi til þess að félagið greiði skatta og skyldur
ÁTVR lýsti því yfir þann 17. maí að hafinn væri undirbúningur að beiðni um lögbann á hendur vefverslunum með áfengi og höfðun dómsmáls í framhaldi af því. Arnar veit ekki til þess að sú lögbannsbeiðni hafi nokkurn tímann verið lögð fram.
Þann 9. júní birti ÁTVR á heimasíðu sinni aðra tilkynningu þar sem fram kom að hún hefði tilkynnt sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um meint brot Sante ehf. og fleiri fyrirtækja á „skyldum sem á þeim hvíla samkvæmt áfengisheildsölu-, áfengisframleiðslu- og áfengisinnflutningsleyfum sem sýslumennirnir hafa gefið út.“
Í lok júnímánaðar kærði ÁTVR svo Arnar, Santewines SAS og Sante ehf. til lögreglu og skattayfirvalda þar sem kallað var eftir rannsókn. Í bréfi til skattstjóra segir meðal annars að „ekkert bendi til þess“ að hið franska félag „greiði af áfenginu skatta og skyldur“ og því felist í starfseminni „undanskot á virðisaukaskatti.“