Segir að hamborgaraástin hafi komið í veg fyrir að Anderson yrði bestur í heimi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2021 12:47 Anderson varð fjórum sinnum Englandsmeistari með Manchester United og einu sinni Evrópumeistari. getty/Alex Livesey Brasilíumaðurinn Rafael segir að landi sinn, Anderson, hefði getað orðið besti leikmaður heims ef ekki hefði verið fyrir ást hans á hamborgurum, sérstaklega McDonald's.
Anderson kom til Manchester United 2007 og var í stóru hlutverki fyrstu tvö tímabil sín hjá félaginu. Honum tókst hins vegar ekki að fylgja því eftir og ferill hans fjaraði út. Rafael lék með Anderson hjá United og segir að landi sinn hafi ekki hugsað nógu vel um sig og hamborgaraástin hafi reynst honum dýr. „Við vorum kannski í rútunni á leið í leiki þegar Anderson stóð upp og öskraði „McDonald's, McDonald's“ rifjaði Rafael upp. „Gaurinn var brjálaður en ég elska hann. Þegar hann fékk nokkra leiki í röð gat hann spilað eins vel og hvaða leikmaður sem er. Hann meiddist oft og svo byrjuðu matarvenjurnar að hafa áhrif á hann. Það var engin tilviljun að hann spilaði best þegar hann spilaði mikið því þá gat hann ekki borðað eins mikið.“ Rafael segir að hugarfar Andersons hafi ekki verið nógu gott og það hafi orðið honum að falli. „Ég vil segja eitt um Anderson, ef hann hefði verið atvinnumaður hefði hann getað verið besti leikmaður heims. Ég segi þetta í fullri alvöru. Hann elskaði lífið og var full slakur á því,“ sagði Rafael sem leikur nú með Istanbul Basaksehir í Tyrklandi. Anderson yfirgaf United 2015 og lagði skóna á hilluna í fyrra eftir að hafa spilað í Tyrklandi síðustu ár ferilsins.
Enski boltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira