Handbolti

Barcelona í undan­úr­slit eftir öruggan sigur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Börsungar sigldu örugglega inn í undanúrslitin.
Börsungar sigldu örugglega inn í undanúrslitin. @FCBhandbol

Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona unnu Meshkov Brest örugglega í Meistaradeild Evrópu í kvöld, lokatölur 40-28 og Barcelona því komið í undanúrslit keppninnar.

Fyrri leikur liðanna var nokkuð jafn en Börsungar unnu með fjórum mörkum og voru í fínum málum fyrir leik kvöldsins. 

Leikur kvöldsins var ekki alveg jafn spennandi en Börsungar voru átta mörkum yfir í hálfleik og unnu leikinn með 12 mörkum, lokatölur 40-28.

Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk og lagði upp tvö til viðbótar.

Barcelona þar með komið í undanúrslit ásamt Álaborg, París Saint-Germain og Nantes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×