Rafíþróttir

RNG enn ósigraðir á MSI

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Royal Never Give Up eru með tíu sigra í tíu leikjum.
Royal Never Give Up eru með tíu sigra í tíu leikjum. Colin Youngwolff/Riot Games/Riot Games Inc. via Getty Images

Fyrsti dagur milliriðilsins fór fram á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. RNG sigraði báða leiki sína, og eru því ósigraðir í tíu leikjum.

RNG mætti heimsmeisturunum í DWG KIA í fyrsta leik dagsins. DWG KIA náði forystunni snemma leiks og leit út fyrir að mögulega væri fyrsta tap RNG á mótinu framundan.

Þegar um 15 mínútur voru liðnar af leiknum fór RNG þó að snúa hlutunum við. Eftir 25 mínútna leik voru liðsmenn RNG komnir með gott forksot sem þeir nýttu sér til að klára leikinn og ná sér þar með í níunda sigur mótsins.

Í öðrum leik dagsins mættust MAD Lions og Pentanet.GG. Það var nokkuð ljóst strax í byrjun að MAD Lions væru of stór biti fyrir Pentanet.GG, og þó að Pentanet.GG hafi reynt hvað þeir gátu til að valda MAD Lions vandræðum var öruggur sigur fulltrúa LEC var aldrei í hættu.

DWG KIA fékk svo tækifæri til að snúa gengi dagsins við þegar þeir mættu PSG Talon. DWG KIA lenti í smá basli í byrjun leiks, og PSG Talon náði góðu forskoti.

Heimsmeistararnir gerðu þó það sem þeir gera best og snéru leiknum sér í hag og unnu að lokum mikilvægan sigur eftir tæplega hálftíma leik.

RNG og Cloud9 mættust svo í mest spennandi leik dagsins. RNG voru með yfirhöndina stærstan hluta leiksins, en eftir tæplega 25 mínútur voru Cloud9 við það að snúa leiknum sér í hag.

Fjórum mínútum síðar gerðu Cloud9 þó afdrifarík mistök þegar þeir sendu allt liðið til að taka Baron. RNG nýtti sér þetta og strunsaði fram og kláraði leikinn á meðan Wei hljóp um eins og óður maður til að koma í veg fyrir það að liðsmenn Cloud9 gætu bakkað.

Seinustu tveir leikir dagsins voru ekki jafn spennandi. Pentanet.GG virðist ætla að verða nokkurs konar fallbyssufóður fyrir hin liðin, en þeir steinlágu fyrir PSG Talon.

MAD Lions og Cloud9 mættust svo í lokaleik dagsins, en margir hafa beðið spenntir eftir viðureign Bandaríkjana og Evrópu.

Kannski hefði fólk átt að stilla væntingum sínum í hóf, en sigur MAD Lions var aldrei í hættu. Þeir tóku forystuna snemma leiks og juku hana jafnt og þétt þangað til að þeir unnu loks eftir 25 mínútur af League of Legends.

Hægt er að fylgjast með MSI á Stöð 2 eSport, en útsending frá öðrum degi milliriðilsins hefst klukkan 12:30 á morgun.

Úrslti dagsins

DWG KIA - RNG

MAD Lions - Pentanet.GG

PSG Talon - DWG KIA

RNG - Cloud9

PSG Talon - Pentanet.GG

Cloud9 - MAD Lions




Fleiri fréttir

Sjá meira


×