Enski boltinn

Leikmenn Man. United þurftu að hanga á Old Trafford í sjö tíma fyrir leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Pogba og félagar í liði Manchester United þurftu að mæta mjög snemma á Old Trafford til að koma í veg fyrir að stuðningsmönnum félagsins tækist að stöðva liðsrútuna.
Paul Pogba og félagar í liði Manchester United þurftu að mæta mjög snemma á Old Trafford til að koma í veg fyrir að stuðningsmönnum félagsins tækist að stöðva liðsrútuna. EPA-EFE/Michael Regan

Ole Gunnar Solskjær var ekki tilbúinn að kenna mótmælendunum um tapið á móti Liverpool í gærkvöldi en það var á hreinu að undirbúningur liðsins var gjörbreyttur þökk sé umræddum stuðningsmönnum sem söfnuðust í kringum liðshótelið og leikvanginn.

Manchester United tapaði 2-4 á móti erkifjendum sínum í Liverpool á heimavelli sínum í gær en Liverpool hafði ekki unnið á Old Trafford í stjóratíð Jürgen Klopp.

Leikurinn átti að fara fram fyrir tíu dögum en var frestað vegna mótmæla stuðningsmanna sem brutust inn á leikvanginn. Mikil öryggisgæsla var í kringum leikvanginn í gær og fjölmennti lögreglan í Manchester á svæðið.

Leikmenn Manchester United þurftu að dúsa á Old Trafford í heila sjö klukkutíma fyrir leik. Þeir komu á völlinn í kringum hádegið í stað þess að eyða tímanum á hótelinu.

Reiðir stuðningsmenn Manchester United umkringdu liðshótelið fyrir leikinn fyrir tíu dögum og liðsrútan fór aldrei af stað. Nú var aftur á áætlun að koma í veg fyrir að rútan færi af stað en forráðamenn Manchester United sáu við því með því að láta leikmenn mæta miklu fyrr á leikvanginn.

Það þýddi að leikmenn Manchester United borðuðu á Old Trafford og tóku orkublundinn þar líka. Starfsmenn United höfðu komið fyrir rúmum í svítum leikvangsins þar sem leikmenn gátu lagt sig í friði.

Manchester United hefur núna tapað tveimur heimaleikjum í röð síðan að mótmælin hófust en Solskjær vildi ekki nota þau sem afsökun.

„Um leið og við vorum mættir þá var öll einbeiting okkar á leikinn. Það er samt gjörólíkur undirbúningur að koma á völlinn á hádegi fyrir leik sem er að byrja korter yfir átta. Það er langur tími til að vera hér en mér fannst strákarnir vinna vel úr því,“ sagði Ole Gunnar Solskjær.

„Auðvitað truflaði þetta okkur aðeins og var engin óskastaða en við urðum bara að taka á því,“ sagði Solskjær.

„Liverpool átti sigurinn skilinn. Við fengum á okkur mörk á lykiltímum í leiknum. Við gáfum þeim tvö þessara marka. Við skoruðum aftur og fengum frábært færi en hlutirnir féllu bara ekki með okkur,“ sagði Solskjær.

Manchester United fær að vera með nokkra áhorfendur í stúkunni á næsta heimaleik á móti Fulham og vonast Solskjær til að það breyti andrúmsloftinu í kringum heimaleiki liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×