MSI er eitt stærsta mót ársins í League of Legends, og eins og áður segir verður það haldið í Laugardalshöll í ár.
Sigurvegarar tólf stærstu deilda heims fá boð um að taka þátt, en GAM Esports frá Víetnam gátu ekki tekið þátt vegna strangra sóttvarnarreglna þar í landi.
John Needham, yfirmaður rafíþrótta hjá Riot Games sem framleiðir League of Legends, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær.
Hann var meðal annars spurður af hverju Ísland hefði verið valið til að halda mótið í ár.
„Við gerðum stórt áhættumat varðandi kórónaveirufaraldurinn og skoðuðum borgir út um allan heim. Eftir það stóðu vel á annan tug borga sem komu til greina.“
„Reykjavík var valin eftir miklar vangaveltur þar sem við einblíndum á kórónaveriufaraldurinn, ferðalög og fleira. Ísland var það land sem stóð sig lang best varðandi kórónaveirufaraldurinn af þeim löndum sem komu til greina.“
Stöð 2 eSport mun eins og áður segir vera í beinni frá öllum keppnisdögunum en mótið hefst í dag og stendur yfir til 22. maí.