KA hefði þurft að reiða sig alfarið á táning í markinu en leikur þess í stað þétt Sindri Sverrisson skrifar 28. apríl 2021 13:00 Hinn 19 ára Bruno Bernat er eini markvörðurinn sem KA hefur til taks á meðan að Nicholas Satchwell er með færeyska landsliðinu og Svavar Ingi Sigmundsson meiddur. vísir/Elín Björg KA mun spila sex leiki á aðeins nítján dögum í maí, í Olís-deild karla í handbolta, eftir að félagið fékk tveimur næstu leikjum sínum frestað vegna landsleikja. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir að fátt annað hafi verið í stöðunni en að biðja um frestun. Markvörðurinn Nicholas Satchwell og hornamaðurinn Allan Norðberg voru valdir í færeyska landsliðið. Annar markvörður liðsins, Svavar Ingi Sigmundsson, spilar svo ekki meira á leiktíðinni vegna meiðsla. Það hefði því komið í hlut hins 19 ára gamla Bruno Bernat að spila næstu tvo leiki í marki KA, með engan varamarkvörð til taks á bekknum. Hvert stig skiptir KA máli en liðið er í 8. sæti, í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni í sumar. „Þetta var kannski ekki erfið ákvörðun. Nicholas markmaður var að fara að spila með Færeyingunum og Svavar er meiddur, búinn í aðgerð, og verður ekki meira með á leiktíðinni. Við hefðum aldrei spilað þessa leiki eingöngu með Bruno, ungan strák úr 3. flokki. Ef að eitthvað hefði komið fyrir hann hefðum við svo bara verið með útileikmann í markinu,“ sagði Sævar. Leikjadagskrá KA í maí: 9. maí: ÍR - KA 13. maí: Afturelding - KA 16. maí: KA - ÍBV 20. maí: KA - FH 24. maí: Valur - KA 27. maí: KA - Þór „Ef að Svavar hefði ekki verið meiddur og nýfarinn í aðgerð þá hefði þetta kannski litið öðruvísi út. Svo er Allan líka að fara í þessa landsleiki, þannig að þetta var aldrei vafi í okkar huga. Þetta kallar vissulega á strembið prógramm þegar menn fara aftur af stað en þetta eru bara þær aðstæður sem við búum við. Við tæklum þetta,“ sagði Sævar. Olís-deild karla KA Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir að fátt annað hafi verið í stöðunni en að biðja um frestun. Markvörðurinn Nicholas Satchwell og hornamaðurinn Allan Norðberg voru valdir í færeyska landsliðið. Annar markvörður liðsins, Svavar Ingi Sigmundsson, spilar svo ekki meira á leiktíðinni vegna meiðsla. Það hefði því komið í hlut hins 19 ára gamla Bruno Bernat að spila næstu tvo leiki í marki KA, með engan varamarkvörð til taks á bekknum. Hvert stig skiptir KA máli en liðið er í 8. sæti, í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni í sumar. „Þetta var kannski ekki erfið ákvörðun. Nicholas markmaður var að fara að spila með Færeyingunum og Svavar er meiddur, búinn í aðgerð, og verður ekki meira með á leiktíðinni. Við hefðum aldrei spilað þessa leiki eingöngu með Bruno, ungan strák úr 3. flokki. Ef að eitthvað hefði komið fyrir hann hefðum við svo bara verið með útileikmann í markinu,“ sagði Sævar. Leikjadagskrá KA í maí: 9. maí: ÍR - KA 13. maí: Afturelding - KA 16. maí: KA - ÍBV 20. maí: KA - FH 24. maí: Valur - KA 27. maí: KA - Þór „Ef að Svavar hefði ekki verið meiddur og nýfarinn í aðgerð þá hefði þetta kannski litið öðruvísi út. Svo er Allan líka að fara í þessa landsleiki, þannig að þetta var aldrei vafi í okkar huga. Þetta kallar vissulega á strembið prógramm þegar menn fara aftur af stað en þetta eru bara þær aðstæður sem við búum við. Við tæklum þetta,“ sagði Sævar.
Leikjadagskrá KA í maí: 9. maí: ÍR - KA 13. maí: Afturelding - KA 16. maí: KA - ÍBV 20. maí: KA - FH 24. maí: Valur - KA 27. maí: KA - Þór
Olís-deild karla KA Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira