Erlent

Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi

Kjartan Kjartansson skrifar
„Friðarveggur“ á milli hverfa sambandssinna og þjóðernissinna við Lanark-veg í vesturhluta Belfast. Andstæðar fylkingar köstuðu hlutum yfir vegginn í nótt.
„Friðarveggur“ á milli hverfa sambandssinna og þjóðernissinna við Lanark-veg í vesturhluta Belfast. Andstæðar fylkingar köstuðu hlutum yfir vegginn í nótt. AP/Peter Morrison

Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar.

Pólitískur órói hefur aukist á Norður-Írlandi eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og sérstakar viðskiptareglur tóku gildi fyrir breska yfirráðasvæðið. Til að komast hjá því að þurfa að koma upp landamæra- og tollaeftirliti á milli Norður-Írlands og Írlands, sem tilheyrir enn ESB, sæta ákveðnir vöruflutningar á milli Norður-Írlands og Bretlands slíku eftirliti. Með þessu telja sambandssinnar að landamærum hafi verið komið upp á milli Norður-Írlands og Bretlands á Írlandshafi.

Óeirðir síðustu daga, sem hófust um páskana, hafa fyrst og fremst átt sér stað í hverfum sambandssinna sem eru hlynntir Brexit, að sögn AP-fréttastofunnar.

Ungmenni köstuðu lausamunum og bensínsprengjum að lögreglumönnum við Shankill-veg þar sem mótmælendur búa. Þá köstuðu óeirðarseggir hlutum í báðar áttir yfir svonefndan „friðarvegg“ sem skilur að hverfi mótmælenda við Shankill-veg og írskra þjóðernissinna.

Heimastjórnin í Belfast ætlar að halda neyðarfund vegna óeirðanna í dag en spenna á milli stjórnmálaflokka sambandssinna og þjóðernissinna hefur einnig farið vaxandi upp á síðkastið. Arlene Foster, oddviti heimastjórnarinnar úr Lýðræðislega sambandssinnaflokknum, og Michael O‘Neill, leiðtogi þjóðernisflokksins Sinn Fein, fordæmdu þó bæði óeirðirnar og árásir á lögreglumenn.

Vildu ákæra þjóðernissinna sem fylgdu IRA-leiðtoga til grafar

Uppþotin hófust á svæðum sambandssinna í Belfast og Londonderry um páskana. Þar var kveikt í bílum og hlutum kastað í lögreglu. Sambandssinnar eru einnig sagðir gramir yfir því að lögregla hafi kosið að ákæra ekki félaga í Sinn Fein flokknum sem voru viðstaddir útför fyrrverandi leiðtoga í Írska lýðveldishernum (IRA) síðasta sumar. Flokkar sambandssinna hafa krafist afsagnar lögreglustjóra Norður-Írlands vegna málsins.

Fleiri en þrjú þúsund manns létu lífið í áratugalöngum átökum á milli írskra þjóðernissinna, breskra sambandssinna og breska hersins á Norður-Írlandi. Stillt var til friðar með samningnum sem hefur verið kenndur við föstudaginn langa árið 1998. Óttast margir að Brexit hafi raskað viðkvæmu jafnvægi í norður-írskum stjórnmálum og samfélagi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×