Körfubolti

Áttundi sigurinn í röð hjá Giannis og félögum en litlu munaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bræðurnir Giannis Antetokounmpo og Thanasis Antetokounmpo fagna saman góðri körfu hjá Milwaukee Bucks í nótt.
Bræðurnir Giannis Antetokounmpo og Thanasis Antetokounmpo fagna saman góðri körfu hjá Milwaukee Bucks í nótt. AP/Morry Gash

Leikmenn Milwaukee Bucks er á mikilli sigurgöngu í NBA deildinni í körfubolta en voru næstum því búnir að henda frá sér sigrinum í nótt.

Khris Middleton var með 27 stig og 13 fráköst þegar Milwaukee Bucks vann 121-119 sigur á Boston Celtics í nótt. Þetta var áttundi sigur Bucks í röð og sá þrettándi í síðustu fjórtán leikjum.

Bobby Portis hitti úr 7 af 10 skotum sínum og skoraði 21 stig en Giannis Antetokounmpo var með 13 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar.

Milwaukee liðið var 90-65 yfir í leiknum í miðjum þriðja leikhluta en var næstum því búið að kasta frá sér 25 stiga forystu. Boston liðið minnkaði muninn í tvö stig og klúðraði síðna nokkrum tækifærum til að jafna eða komast yfir.

Leikmenn Milwaukee vörðu tvö skot frá Boston mönnum á lokasekúndunum og auk þess klikkuðu leikmenn Celtics á tveimur þriggja stiga skotum. Þetta var fimmta tap Boston í síðustu sex leikjum. Jaylen Brown skoraði 24 stig og Kemba Walker var með 23 stig.

Evan Fournier skoraði sigurkörfu Orlando Magic í 112-111 sigri á Phoenix Suns í mögulega sínum síðasta leik með liðinu. Fournier endaði með 21 stig en sigurkörfuna skoraði hann yfir miðherjann Deandre Ayton þegar 6,4 sekúndur voru eftir.

Fournier vill ekki fara frá Orlando en samningur hans rennur út í sumar og félagið gæti freistast til að skipta honum áður en glugginn lokast.

Nikola Vucevic var atkvæðamestur hjá Orlando með 27 stig og 14 fráköst en nýliðinn Chuma Okeke klikkaði ekki á skoti og endaði með 17 stig.

Devin Booker var stigahæstur hjá Suns með 25 stig og Chris Paul skoraði 8 af 23 stigum sínum í fjórða leikhluta. Phoenix Suns var búið að vinna sjö leiki í röð fyrir leikinn sem var sú lengsta hjá liðinu síðan 2006-07 tímabilið.

Donovan Mitchell skoraði 27 stig þegar Utah Jazz vann öruggan 118-88 sigur á Brooklyn Nets. Bojan Bogdanovic skoraði 18 stig eins og Mike Conley. Þetta var fjórði sigur Jazz í fimm leikjum. Þetta var sautjándi heimasigur Utah í röð.

Nets átti litla möguleika þegar James Harden gat ekki spilað vegna hálseymsla en auk þess voru þeir Kevin Durant og Kyrie Irving ekki með. Alize Johnson, sem skrifaði undir 10 daga samning á mánudaginn, var með 23 stig og 15 fráköst.

Kawhi Leonard var öflugur á móti sínum gömlu félögum en hann skorðai 25 stig þegar Los Angeles Clippers vann 134-101 sigur á San Antonio Spurs. Stuðningsmenn Spurs bauluðu á hann í hvert skipti sem hann fékk boltann. Þetta var þriðji sigur Clippers í röð og sá ellefti með meira en tuttugu stigum á leiktíðinni.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

  • Milwaukee Bucks - Boston Celtics 121-119
  • Orlando Magic - Phoenix Suns 112-111
  • Indiana Pacers - Detroit Pistons 116-111
  • Toronto Raptors - Denver Nuggets 135-111
  • Chicago Bulls - Cleveland Cavaliers 94-103
  • Houston Rockets - Charlotte Hornets 97-122
  • Minnesota Timberwolves - Dallas Mavericks 108-128
  • Oklahoma City Thunder - Memphis Grizzlies 107-116
  • San Antonio Spurs - Los Angeles Clippers 101-134
  • Utah Jazz - Brooklyn Nets 118-88
  • Sacramento Kings - Atlanta Hawks 110-108
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×