94 prósent hafa þegið eða segjast munu þiggja bólusetningu Atli Ísleifsson skrifar 12. mars 2021 11:04 12.844 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 21.174 til viðbótar. Vísir/Vilhelm 94 prósent landsmanna hafa þegið eða hyggjast þiggja bólusetningu gegn kórónuveirunni COVID-19. Af þeim sem höfðu eða hugðust afþakka bólusetningu voru fimm prósent sem sögðust afþakka bólusetningu með bóluefni AstraZeneca ef þeim yrði boðin bólusetning með bóluefninu.
Færri sögðust hafa eða ætla að afþakka bóluefni frá Moderna (þrjú prósent), Janssen (þrjú prósent) og Pfizer (tvö prósent) Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var í mars 2021. Stuðningsfólk Miðflokksins ólíklegast „Lítill munur reyndist á afstöðu svarenda eftir kyni eða búsetu. Svarendur 68 ára og eldri reyndust líklegastir til að segjast munu þiggja eða hafa þegið bóluefni (97%) en svarendur á aldrinum 18-29 ára ólíklegastir (93%). Lítill munur var þó á milli aldurshópa á hlutföllum þeirra sem kváðust ætla að afþakka einstök bóluefni. Öllu meiri mun var þó að finna á svörun eftir stjórnmálaafstöðu svarenda. Stuðningsfólk Samfylkingarinnar (99%), Vinstri-grænna (98%) og Sjálfstæðisflokksins (95%) reyndist líklegast allra til að þiggja bóluefni en stuðningsfólk Miðflokksins (77%) ólíklegast. Nokkurn breytileika var að sjá á hlutfalli þeirra sem kváðust hafa eða ætla að afþakka bóluefni frá einsökum framleiðendum. Alls kváðust 17% stuðningsfólks Miðflokksins, 8% stuðningsfólks Pírata, 7% stuðningsfólks Framsóknar og 6% stuðningsfólks Viðreisnar hafa eða ætla að afþakka bóluefni AstraZeneca en stuðningsfólk Miðflokksins (10%) og Pírata (7%) reyndist einnig líklegra en aðrir til að hafa eða ætla að afþakka bóluefni Janssen. Þá kváðust 5% stuðningsfólks Pírata og Framsóknar og 7% stuðningsfólks Miðflokksins hafa eða ætla að afþakka bóluefni Moderna og 5% stuðningsfólks Pírata og Miðflokksins og 4% stuðningsfólks Framsóknar kváðust ætla að afþakka bóluefni Pfizer,“ segir í tilkynningu á vef MMR. Könnunin var framkvæmd dagana 5. til 10. mars 2021 og var heildarfjöldi svarenda 951 einstaklingur, 18 ára og eldri.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skoðanakannanir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira