Innlent

Þrír stórir skjálftar á tólfta tímanum en enginn órói

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skjálftavirknin í kvöld hefur að mestu verið bundin við Fagradalsfjall.
Skjálftavirknin í kvöld hefur að mestu verið bundin við Fagradalsfjall. Vísir/Vilhelm

Þrír stórir skjálftar urðu á tólfta tímanum í kvöld en enginn órói hefur mælst í kjölfarið, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Skjálftarnir urðu allir við Fagradalsfjall og fundust vel á suðvesturhorninu.

Fyrsti skjálftinn reið yfir kl. 23.01 og mældist 4 að stærð. Þá fylgdi annar upp á 3,7 í kjölfarið kl. 23.04 og einn upp á 3,6 kl. 23.45.

Í athugasemdum jarðvísindamanns á vef Veðurstofu Íslands sagði eftirfarandi nú í kvöld:

„Kl. 23:01 varð skjálfti af stærð 4,0 í Fagradalsfjalli. Stuttu síðar kl. 23:04 varð skjálfti 3,7 að stærð á sömu slóðum. Tilkynningar hafa borist frá SV-horninu um að hann hafi fundist. Kl. 21:38 mældist skjálfti af stærð 3,5.“

Frá kl. 19.22 hafa þrettán skjálftar mælst stærri en 3.

Uppfært klukkan 00:49

Skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu um klukkan 00:26 í nótt. Stærð hans reyndist vera 3,5 og upptökin 2,3 kílómetra suður af Fagradalsfjalli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×