Teitur Örn frábær í dramatískum sigri Kristianstad Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. febrúar 2021 19:25 Teitur Örn var frábær í kvöld. EPA-EFE/Piotr Augustyniak Kristianstad frá Svíþjóð vann gríðar mikilvægan sigur á útivelli gegn Dinamo Búkarest í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 29-28 sænska liðinu í vil. Teitur Örn Einarsson for mikinn í liði gestanna.
Leikurinn var hörku skemmtun en það voru heimamenn sem höfðu yfirhöndina í hálfleik. Báðar varnir voru sterkar og ekki var mikið skorað framan af leik, staðan í hálfleik 14-12 heimamönnum í vil. Sóknarleikur beggja liða skánaði örlítið í síðari hálfleik en heimamenn voru áfram með yfirhöndina, það er þangað til undir lok leiks. Heimamenn voru tveimur mörkum yfir þegar fjórar mínútur lifðu leiks. Teitur Örn minnkaði í muninn í 28-27 og í kjölfarið fylgdu tvö mörk frá gestunum sem unnu leikinn eftir ótrúlegar lokamínútur. Lokatölur 28-29 í Rúmeníu og sigurinn því Kristianstad. Teitur Örn skoraði sex mörk í sænska liðinu og Ólafur Andrés Guðmundsson gerði tvö. Sigurinn þýðir að Kristianstad er nú jafnt Füchse Berlin á toppi B-riðils með tíu stig en þýska liðið á tvo leiki til góða. Þá á Nimes sem situr í þriðja sætinu, einu stigi á eftir toppliðunum, einnig leik til góða á Kristianstad. Ólafur Andrés er fyrirliði Kristianstad.@ehfel_official
Handbolti Mest lesið Sama sorglega lausnin og vanalega: Drögum kvennaliðið úr keppni Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik Íslenski boltinn „Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Sport Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti Mjög ósáttur við rasisma meðal þýsku þjóðarinnar Fótbolti Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fótbolti Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Landsliðskonan náði á kjörstað fyrir lokun Sport Charles Barkley og fleiri hneyksluð yfir ljótum brotum á Caitlin Clark Körfubolti Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Fleiri fréttir Teitur og Oddur voru báðir níu af níu í lokaumferðinni Óðinn tvöfaldur meistari i Sviss: Markahæstur í oddaleiknum Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ Sjá meira