Handbolti

Landin hugsi yfir stöðunni í Þýskalandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Landin veit ekki hvernig forsvarsmenn þýsku deildarinnar ætla að klára deildina.
Landin veit ekki hvernig forsvarsmenn þýsku deildarinnar ætla að klára deildina. Christof Koepsel/Getty Images

Niklas Landin, heimsmeistari og markvörður Kiel í þýsku deildinni, óttast um að erfitt verði að klára deildina í Þýskalandi eftir að enn eitt smitið kom upp í herbúðum liðsins um helgina.

Landin og samherjar hans eru komnir í sóttkví í annað sinn á leiktíðinni eftir að leikmaður liðsins smitaðist af kórónuveirunni um helgina. Leikjum liðsins gegn Leipzig í þýsku deildinni og HC Motor í Meistaradeildinni hefur verið frestað.

„Hvernig við klárum deildina er stórt spurningarmerki. Þetta verður meiri og meiri pressa með okkar dagskrá,“ sagði markvörðurinn í samtali við sjónvarpsstöðina NDR.

„Ég vona að við þurfum ekki að blása tímabilið af. Það gæti, í verstu sviðsmyndinni, átt sér stað.“

Frank Bohmann, framkvæmdastjóri þýsku úrvalsdeildarinnar, segir að það gæti endað með því að ekki verði hægt að leika alla leiki deildarinnar.

„Það er áhætta á því að við getum ekki klárað leikina 38 fyrir hvert einasta lið.“

Melsungen, lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar, hefur farið verst út úr kórónuveirunni. Þeir hafa einungis spilað tíu af sextán leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×