Matur

Vatnsdeigsbollurnar hennar Evu Laufeyjar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Matgæðingurinn Eva Laufey ætlar að hafa kennslu í vatnsdeigsbollugerð á Instagram um helgina.
Matgæðingurinn Eva Laufey ætlar að hafa kennslu í vatnsdeigsbollugerð á Instagram um helgina. Eva Laufey

Eva Laufey Kjaran tekur bolludeginum mjög alvarlega og í ár var hún byrjuð að plana fyllingar og skreytingar í janúar.

Á sunnudaginn ætlar hún að gera sínar klassísku vatnsdeigsbollur í beinni á Instagram og geta áhugasamir fylgst með eða jafnvel bakað með henni á eigin heimili. Nánari upplýsingar má finna á Instagram síðunni @evalaufeykjaran.

Hér fyrir neðan má finna klassíska uppskrift af vatnsdeigsbollum frá Evu Laufey og myndband af aðferðinni er svo neðst í fréttinni. Þetta brot er úr þáttunum Í Eldhúsi Evu. 

Vatnsdeigsbollur

10 – 12 bollur

  • 100 g smjör
  • 2 dl vatn
  • 2 msk sykur
  • 110 g hveiti
  • 3 stór egg

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C. (blástur)
  2. Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 – 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.
  3. Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
  4. Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
  5. Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
  6. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.

Hugmyndir að fyllingum má finna hér fyrir neðan.

Í uppáhaldi hjá Evu Laufey er jarðaberjafylling og nutellabananafylling.Eva Laufey



Nutella – og bananarjómi

Þetta er fyllingin sem þið óskið að taki aldrei enda, hún er of góð til að vera sönn. (en þetta er engu að síður sönn saga)

  • 4 dl rjómi
  • 1 banani
  • 3 msk. Nutella

Aðferð:

  • Þeytið rjóma.
  • Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.
  • Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.

Jarðarberjafylling

Klassísk og góð fylling sem fær mig til þess að fara aftur í tímann þegar ég var yngri og fékk pening hjá mömmu til þess að hlaupa út í bakarí og kaupa mér eina gómsæta bollu með dísætu bleiku kremi. Nostalgían í hámarki við hvern bita…

  • 1 askja jarðarber (10 – 12 stk)
  • 4 dl rjómi
  • 2 tsk. flórsykur

Aðferð:

  1. Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
  2. Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin
  3. Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×