Handbolti

Sakaður um að gera sér upp meiðsli til að sleppa HM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luka Cindric er lykilmaður í króatíska landsliðinu og Barcelona.
Luka Cindric er lykilmaður í króatíska landsliðinu og Barcelona. epa/VALDRIN XHEMAJ

Fyrrverandi sjúkraþjálfari króatíska karlalandsliðsins í handbolta segir að Luka Cindric, ein stærsta stjarna liðsins, hafi gert sér upp meiðsli á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi.

Cindric, sem leikur með Aroni Pálmarssyni hjá Barcelona, féll úr skaftinu á HM vegna meiðsla. Damir Kajba, sem var sjúkraþjálfari Króatíu á HM, segir að ekkert hafi verið að Cindric.

Eftir HM tók Hrvoje Horvat við króatíska landsliðinu af Lino Cervar. Horvat gerði breytingar á starfsliði landsliðsins og lét meðal annars Horvat fara sem sjúkraþjálfarinn var ósáttur við. Í viðtali við RTL lét hann gamminn geysa, sakaði Horvat um óvirðingu þegar hann lét hann fara og skaut svo föstum skotum að Cindric.

Í færslu sem hann skrifaði á samfélagsmiðla eftir brottreksturinn sagði Kajba að einn leikmaður króatíska liðsins ætti ekki skilið að klæðast landsliðstreyjunni framar. Í viðtalinu við RTL sagði hann að umræddur leikmaður væri Cindric.

„Hann er ekki mitt vandamál, hann er vandamál króatíska handknattleikssambandsins. Þegar þeir leysa það komast þeir aftur á toppinn. Þú getur ekki spilað með landsliðinu bara þegar þú vilt,“ sagði Kajba og tók dæmi um að menn á borð við Domagoj Duvnjak og Igor Karacic hefðu spilað þjáðir á HM.

Kajba segir að Cindric hafi ekki verið meiddur fyrir HM og hafi ekki æft almennilega í aðdraganda mótsins.

„Hann mætti til æfinga 1. janúar. Þegar þú horfðir á úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu tókstu eftir því að hann hefði meiðst? Hann var kannski ekki upp á sitt besta en spilaði. Hann var heill þegar hann mætti en átti ekki tvær góðar æfingar. Hann rúllaði sér á dýnu, skoðaði símann sinn, teygði og sat á hjóli um stund,“ sagði Kajba og bætti við að Cindric hefði kennt sér meins í vináttuleik gegn Spáni fyrir HM.

Cindric fór í kjölfarið í myndatöku en þar sást ekkert. Hann hafi sagst vera klár og ákveðið að fara til Egyptalands en hafi aðeins æft einu sinni fyrir fyrsta leik Króatíu á mótinu. Þar gerðu Króatar óvænt jafntefli við Dag Sigurðsson og strákana hans í Japan, 29-29. Cindric skoraði fjögur mörk úr tíu skotum í leiknum.

Eftir leikinn gegn Japan sagðist Cindric ekki geta spilað meira. Hann fór heim til Zagreb og eftir nokkra daga til Barcelona.

Kajba sagðist svo hafa fengið misvísandi upplýsingar frá læknum Barcelona, meðal annars á hvorum fætinum Cindric var meiddur. Á endanum sagði einn læknanna að Cindric væri meiddur á hægri fæti og yrði frá í fimmtán daga. Hann fór ekki aftur til Egyptalands þar sem Króatía endaði í 15. sæti sem er versti árangur liðsins á stórmóti í áraraðir.

Cindric og félagar í Barcelona unnu útisigur á Veszprém, 34-37, í Meistaradeildinni í gær. Cindric skoraði fimm mörk líkt og Aron.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×