Handbolti

Vorum sjálfum okkur verstir þegar upp er staðið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðmundur var ekki sáttur með þann fjölda mistaka sem íslenska liðið gerði í dag.
Guðmundur var ekki sáttur með þann fjölda mistaka sem íslenska liðið gerði í dag. EPA-EFE/Khaled Elfiqi

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, var ekki sáttur með allan þann fjölda mistaka sem íslenska landsliðið gerði er það tapaði fyrir Portúgal í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta í kvöld.

Leiknum lauk með tveggja marka sigri Portúgala en Guðmundur var á því að íslenska liðið hefði verið sjálfum sér verst í kvöld. Hann ræddi við Einar Örn Jónsson á RÚV að leik loknum.

„Við gerum of marga tæknifeila í sókninni, alls fimmtán talsins og það gengur ekki upp. Þeir gera aðeins sjö og í svona jöfnum leik þá gengur það ekki upp. Við förum með dauðafæri á mikilvægum kafla í leiknum og fórum ekki nægilega vel með þau hraðaupphlaup sem við fengum“ sagði Guðmundur um ástæður tapsins í kvöld og hélt svo áfram.

„Við vorum sjálfum okkur verstir þegar upp er staðið. Við náðum upp markvörslu í síðari hálfleik og fengum möguleika til að snúa þessu við. Við náðum hins vegar ekki að nýta tækifærin þegar þau komu, hvort sem það var yfirtala eða hraðaupphlaup. Við vorum ítrekað að reyna troða boltanum inn á línu í vonlausar stöður,“ bætti landsliðsþjálfarinn við.

Aðspurður hvort það væri ef til vill jákvætt að liðið hefði aðeins tapað með tveggja marka mun þrátt fyrir öll þessi mistök þá játti Guðmundur því.

Pirrar mann aðallega að sjá þennan fjölda af mistökum

„Við vissum að þetta yrði 50/50 leikur og til að vinna svona leik þarf einfaldlega meira að ganga upp. Mér fannst hik í mönnum þrátt fyrir að við höfum byrjað vel og það var grimmd í þessu í upphafi. Við fórum of snemma að koma okkur í vondar stöður og henda boltanum rá okkur.“

„Við gerðum óvenju mörg mistök sem andstæðingurinn nýtti sér, þar fannst mér munurinn liggja í kvöld. Það má svo sem segja að sé styrkur að tapa með tveggja marka mun gegn þessu sterka liði þrátt fyrir öll þessi mistök. Nú þurfum við að halda áfram en það er allt mögulegt í þessu.“

„Við erum rétt að byrja og eins og ég segi þá pirrar það mann aðallega að sjá þennan fjölda af mistökum. Það er ekki hægt að leyfa sér slíkt á svona móti. Við þurfum að fara yfir þetta og gera okkur klára í næsta verkefni sem er gegn mjög öflugum liðum. Þau spila óhefðbundið, eru mjög aggressíf og það er ljóst að báðir leikir verða erfiðir,“ sagði Guðmundur að lokum.

Næsti leikur Íslands er gegn Alsír þann 16. janúar. Sá hefst klukkan 19.30.


Tengdar fréttir

Þetta hafði Twitter að segja um tapið gegn Portúgal

Ísland mætti Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta sem nú fer fram í Egyptalandi. Þetta var þriðja viðureign liðanna á stuttum tíma en nú höfðu Portúgalir betur, lokatölur 25-23 og tap staðreynd í fyrsta leik Íslands á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×