Viðskipti innlent

Lægsta gengi hlutabréfa Icelandair frá upphafi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur hrapað í morgun.
Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur hrapað í morgun. Vísir/Vilhelm

Gengi á hlutabréfum í Icelandair í Kauphöll Íslands hefur hrapað um 24 prósent síðan viðskipti hófust í morgun. Viðskipti með bréfin, þegar þetta er skrifað, hafa numið 31 milljón króna.

Gengi bréfanna stendur nú í 1,95 en fór í morgun lægst niður í 1,4. Er það lægsta gengi á hlutabréfum Icelandair frá upphafi en áður hafði það farið niður í 1,9 í október 2009. Sé miðað við gengið 1,95 er gengi bréfa Icelandair um 10,6 milljarðar króna.

Eins og önnur flugfélög um heim allan er rekstur Icelandair nú gríðarlega erfiður þar sem flugsamgöngur liggja nánast alveg niðri vegna kórónuveirufaraldursins.

Í liðinni viku sagði félagið upp meirihluta starfsmanna og á föstudag birti Icelandair Group bráðabirgðatölur úr uppgjöri félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2020.

Þar kom fram að afkoma félagsins á fyrstu tveimur mánuðum ársins var í takt við væntingar og batnaði töluvert á milli ára.

Afkoma félagsins í mars, þegar kórónuveiran fór að hafa áhrif, var á aftur á móti töluvert undir væntingum vegna veirunnar og afleiðinga hennar. Uppgjör félagsins vegna fyrsta ársfjórðungs verður birt í heild sinni síðar í dag.

Eins og grein hefur verið frá vinna stjórnendur Icelandair nú að því að afla félaginu aukins hlutafjár. Stefnt er að því að ná inn allt að 29 milljörðum króna í hlutafjárútboði og þá hafa stjórnvöld sagt að þau séu tilbúin til að lána félaginu fé eða gangast í ríkisábyrgð fyrir láni að því gefnu að nýtt hlutafé komi inn á næstunni.

„Fyrirhugað útboð er háð því að viðræður við stéttafélög skili árangri sem og samþykki hluthafafundar. Viðræður standa einnig yfir við aðra hagaðila, svo sem fjármögnunaraðila, flugvélaleigusala og birgja til að styrkja langtíma samkeppnishæfni félagsins enn frekar,“ sagði í tilkynningu Icelandair til Kauphallar fyrir helgi.

Fréttin var uppfærð kl. 11:01.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×