Yfirlýsing frá Nóa Síríus: Fjárkúgunartilraunin var viðvaningsleg Haraldur Guðmundsson skrifar 22. ágúst 2013 13:13 Stjórnendur Nóa Síríusar leituðu til lögreglunnar sem tókst að hafa hendur í hári mannanna. Mynd/Stefán Karlsson
Stjórnendur Nóa Síríusar staðfesta að tilraun hafi verið gerð til að kúga fé út úr fyrirtækinu. Í fréttatilkynningu sem þeir sendu frá sér segir að málið sé mannlegur harmleikur þar sem ónefndir aðilar hafi hótað að valda fyrirtækinu tjóni nema greidd væri tiltekin upphæð. „Tilraunin var viðvaningsleg og aldrei var nein hætta á ferðum. Háttsemi sem þessi, hversu klaufaleg sem hún kann að vera, er þó algjörlega óviðunandi og stjórnendur Nóa Síríusar leituðu umsvifalaust til lögreglunnar sem tókst að hafa hendur í hári mannanna,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins. Vísir.is greindi frá því í morgun að ríkissaksóknari hefði fellt niður mál á hendur Sigurði Inga Þórðarsyni fyrir tilraun til að kúga fé út úr Nóa Síríusi í lok janúar og byrjun febrúar 2012 . Sigurður, sem einnig hefur verið kallaður Siggi hakkari, komst í sviðsljósið fyrr á þessu ári þegar í ljós kom að bandaríska alríkislögreglan, FBI, hafði yfirheyrt vegna starfa hans fyrir Wikileaks. Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, staðfesti við fréttastofu í morgun að málið gegn Sigurði hafi verið látið niður falla. Hann sagði þá að tveir aðrir aðilar séu taldir tengjast málinu, en vildi ekki tjá sig nánar um það að svo stöddu.
Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Kuldaskil á leið yfir landið Veður Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fleiri fréttir Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Sjá meira