Auglýsingaskrum Landsbankans! Jónína Óskarsdóttir skrifar 29. júní 2011 06:00 Mikil var gleði mín og hvílíkur léttir þegar ég heyrði viðtal við bankastjóra Landsbankans, Steinþór Pálsson, í fréttum sjónvarps nýlega. Þar tilkynnti hann að tekin hefði verið um það ákvörðun í Landsbankanum að leiðrétta skuldamálin hjá viðskiptavinum bankans. Mig minnir að hann hafi sagt að það væri öllum í hag. Viðskiptavinir í skilum áttu að fá sérlega vinveittar móttökur og endurgreiðslu vaxta eitthvað aftur í tímann. Hvílíkur léttir! Óvenjulétt á fjármálafæti fór ég í viðtal við minn ágæta þjónustufulltrúa í bankanum. Vildi fá að vita milliliðalaust hversu mikil fjárhæð „kona í skilum“ fengi vegna endurgreiðslu á vöxtum og jafnvel einhverja leiðréttingu á ofsaverðtryggðu láni. Það kom í ljós að ég á ekki rétt á neinni lækkun lána. Gleðitíðindin fólust í því að veðsetningin er ekki yfir þeim prósentum sem Landsbankinn miðar við. Aukaatriði er það víst að eignahluturinn minn í íbúðinni hafi þurrkast út í hruninu. Lánið mitt sem ég tók fyrir 7 árum í Landsbankanum var kr. 12.400.000 en var í dag (27. júní) kl. 13.05; - kr. 18.063.364. Von mín hafði verið að þær fimm milljónir sem ég átti í íbúðinni kæmu afkomendum mínum til góða. Ég vissi þó að ég átti rétt á endurgreiðslu vaxta. Okkur þjónustufulltrúanum reiknaðist gróflega að það væru um það bil 240.000 krónur. Og hér kemur ástæða þess að ég sest niður og hamra hér á lyklaborðið. Þessar 240.000 krónur sem ég átti að fá endurgreiddar í vöxtum sem ég hef borgað ganga upp í höfuðstól lánsins! Sem sagt svokölluð endurgreiðsla sem ég átti rétt á fer bara í þennan sama botnlausa vasa Landsbankans. Hvort á að kalla þetta sjónhverfingar eða níðingsbragð þegar bankinn leyfir sér að hæðast að skuldaáþján landsmanna. Þessar 240.000 krónur hefðu getað létt aðeins róðurinn hjá þessari láglaunakonu í skilum næstu mánuðina. Að vera í skilum með ofsa-vísitölutryggð lán – er ekki val heldur það sem maður neyðist til að gera því ekki er hægt að bæta lögfræðikostnaði ofan á afborganir sem fólk er að sligast undan. Guð hjálpi þeim sem eru með börn sem þurfa að fá að borða allan mánuðinn! Nú vil ég biðja þá sem sterkir eru í stærðfræðinni að hjálpa mér að reikna út hvað þessi 240.000 króna „endurgreiðsla vaxta“ hefði orðið mikil hagræðing og skuldalækkun fyrir undirritaða; á mánuði næstu þrjátíu eða fjörutíu árin. Þá verð ég orðin 86 eða 96 ára gömul. Vonandi fá þó einhverjir viðskiptaþræla Landsbankans leiðréttingu. Ég hvet alla; forðum okkur frá Landsbankanum – ef við getum. Við þessum tilfærslum á aurum segi ég – NEI TAKK! Þessari 240.000 króna tilfærslu getur bankastjóri Landsbankans Steinþór Pálsson troðið þangað sem aldrei skín ljós! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Sjá meira
Mikil var gleði mín og hvílíkur léttir þegar ég heyrði viðtal við bankastjóra Landsbankans, Steinþór Pálsson, í fréttum sjónvarps nýlega. Þar tilkynnti hann að tekin hefði verið um það ákvörðun í Landsbankanum að leiðrétta skuldamálin hjá viðskiptavinum bankans. Mig minnir að hann hafi sagt að það væri öllum í hag. Viðskiptavinir í skilum áttu að fá sérlega vinveittar móttökur og endurgreiðslu vaxta eitthvað aftur í tímann. Hvílíkur léttir! Óvenjulétt á fjármálafæti fór ég í viðtal við minn ágæta þjónustufulltrúa í bankanum. Vildi fá að vita milliliðalaust hversu mikil fjárhæð „kona í skilum“ fengi vegna endurgreiðslu á vöxtum og jafnvel einhverja leiðréttingu á ofsaverðtryggðu láni. Það kom í ljós að ég á ekki rétt á neinni lækkun lána. Gleðitíðindin fólust í því að veðsetningin er ekki yfir þeim prósentum sem Landsbankinn miðar við. Aukaatriði er það víst að eignahluturinn minn í íbúðinni hafi þurrkast út í hruninu. Lánið mitt sem ég tók fyrir 7 árum í Landsbankanum var kr. 12.400.000 en var í dag (27. júní) kl. 13.05; - kr. 18.063.364. Von mín hafði verið að þær fimm milljónir sem ég átti í íbúðinni kæmu afkomendum mínum til góða. Ég vissi þó að ég átti rétt á endurgreiðslu vaxta. Okkur þjónustufulltrúanum reiknaðist gróflega að það væru um það bil 240.000 krónur. Og hér kemur ástæða þess að ég sest niður og hamra hér á lyklaborðið. Þessar 240.000 krónur sem ég átti að fá endurgreiddar í vöxtum sem ég hef borgað ganga upp í höfuðstól lánsins! Sem sagt svokölluð endurgreiðsla sem ég átti rétt á fer bara í þennan sama botnlausa vasa Landsbankans. Hvort á að kalla þetta sjónhverfingar eða níðingsbragð þegar bankinn leyfir sér að hæðast að skuldaáþján landsmanna. Þessar 240.000 krónur hefðu getað létt aðeins róðurinn hjá þessari láglaunakonu í skilum næstu mánuðina. Að vera í skilum með ofsa-vísitölutryggð lán – er ekki val heldur það sem maður neyðist til að gera því ekki er hægt að bæta lögfræðikostnaði ofan á afborganir sem fólk er að sligast undan. Guð hjálpi þeim sem eru með börn sem þurfa að fá að borða allan mánuðinn! Nú vil ég biðja þá sem sterkir eru í stærðfræðinni að hjálpa mér að reikna út hvað þessi 240.000 króna „endurgreiðsla vaxta“ hefði orðið mikil hagræðing og skuldalækkun fyrir undirritaða; á mánuði næstu þrjátíu eða fjörutíu árin. Þá verð ég orðin 86 eða 96 ára gömul. Vonandi fá þó einhverjir viðskiptaþræla Landsbankans leiðréttingu. Ég hvet alla; forðum okkur frá Landsbankanum – ef við getum. Við þessum tilfærslum á aurum segi ég – NEI TAKK! Þessari 240.000 króna tilfærslu getur bankastjóri Landsbankans Steinþór Pálsson troðið þangað sem aldrei skín ljós!
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun