Líf Norwegian hangir á bláþræði Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 1. maí 2020 08:49 Aðgerðapakkinn sem Norwegian Air kynnti fyrir hluthöfum félagsins heyrir upp á 175,2 milljarða krónur. EPA/Toms Kalnins
Örlög Norwegian voru ákveðin í gær en hluthafar greiddu atkvæði í gærkvöldi um það hvort björgunarpakki sem flugfélagið lagði til yrði samþykktur. Hluthafar áttu fund klukkan 16:00 að staðartíma í gær til að kjósa um pakkann en það liggur fyrir að hlutafé félagsins verði uppurið um miðjan maí eins og greint er frá á vef fréttastofu Reuters. Flugfélagið sendi út nýtt, og loka, tilboð klukkan 13:59 í gær og gaf hluthöfum frest til 21:00 til að meta stöðuna. Síðan þá hefur ekkert heyrst frá félaginu um niðurstöðu málsins. „Við höfum engar upplýsingar til að miðla að svo stöddu. Við munum gefa út tilkynningu til kauphallarinnar í Ósló þegar við getum,“ sagði talskona Norwegian. Til að þrauka þarf félagið að breyta 1,2 milljörðum dollara, sem samsvarar um 175,2 milljörðum íslenskra króna, af skuldum í hlutafé auk þess sem stærstur eignarhluti í félaginu mun vera í höndum skuldabréfahafa og leigusala, verði aðgerðapakkinn samþykktur af hluthöfum og skuldareigendum. Verði pakkinn samþykktur þurfa leigusalar að lýsa yfir stuðningi við hann fyrir sunnudag og skuldabréfahafar þurfa að samþykkja tillöguna á fundi á mánudag. Verði aðgerðapakkinn samþykktur mun norska ríkið veita félaginu 260 milljóna dollara lán, sem samsvarar tæpum 38 milljörðum króna. Það veltur þó á því hvort hlutafé félagsins eykst. Flugfélagið varaði við því þann 27. apríl síðastliðinn að færi félagið í gjaldþrot myndu flestir kröfuhafar fá lítið úr þrotabúinu. Þá greindu einhverjir hluthafar frá því fyrir fundinn í gær að þeir myndu styðja tillöguna. Flugfélagið hefur á síðustu árum orðið þriðja stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu og stærsta erlenda flugfélagið sem flýgur til New York og annarra stórborga í Bandaríkjunum en það hefur einnig safnað upp skuldum upp á nærri 8 milljarða dollara, eða um 1.168 milljarða íslenskra króna. Þá hafði flugfélagið gert ráðstafanir til að skera niður útgjöld og fækka ferðum áður en kórónuveirufaraldurinn braust út, í von um að skila hagnaði í ár í fyrsta skipti í fjögur ár.
Noregur Fréttir af flugi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir 131 missir vinnuna hjá Airport Associates 53 starfsmenn eru eftir hjá fyrirtækinu og segir forstjórinn að fyrirtækið þurfi áfram að afgreiða flugvélar þótt umferð sé mjög lítil. 30. apríl 2020 11:25 Telur að vandræði flugbransans séu rétt að byrja Guillaume Faury, framkvæmdastjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, telur að sú niðursveifla sem flugbransinn um víða veröld stendur nú frammi fyrir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sé enn á frumstigi. 29. apríl 2020 07:45 Banna farþegaflug til og frá Argentínu fram í september Ríkisstjórn Argentínu hefur bannað allt millilanda- og innanlandsflug með farþega vegna kórónuveirufaraldursins til 1. september. Samtök flugfélaga segja að þúsundir manna gætu misst vinnuna fyrir vikið og alþjóðleg flugmálayfirvöld segja aðgerðirnar brot á samningum. 28. apríl 2020 16:28 Mest lesið eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira
131 missir vinnuna hjá Airport Associates 53 starfsmenn eru eftir hjá fyrirtækinu og segir forstjórinn að fyrirtækið þurfi áfram að afgreiða flugvélar þótt umferð sé mjög lítil. 30. apríl 2020 11:25
Telur að vandræði flugbransans séu rétt að byrja Guillaume Faury, framkvæmdastjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, telur að sú niðursveifla sem flugbransinn um víða veröld stendur nú frammi fyrir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sé enn á frumstigi. 29. apríl 2020 07:45
Banna farþegaflug til og frá Argentínu fram í september Ríkisstjórn Argentínu hefur bannað allt millilanda- og innanlandsflug með farþega vegna kórónuveirufaraldursins til 1. september. Samtök flugfélaga segja að þúsundir manna gætu misst vinnuna fyrir vikið og alþjóðleg flugmálayfirvöld segja aðgerðirnar brot á samningum. 28. apríl 2020 16:28