Íslensk verðbréf taka við rekstri og vörslu sjóða Rekstrarfélags SPRON hf 9. júní 2009 12:19 Sævar Helgason
Bráðabirgðastjórn SPRON hefur gert samkomulag við Íslensk verðbréf (ÍV) um að taka að sér þjónustu á sviði vörslu og eignastýringar við viðskiptavini sem áður voru hjá SPRON og SPRON Verðbréfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskum verðbréfum. Þá segir að samhliða því hafi verið samið um Rekstrarfélag verðbréfasjóða taki við rekstri sjóða sem áður voru starfræktir af Rekstarfélagi SPRON hf. Markmið samkomulagsins, sem þegar hefur tekið gildi, er að koma þjónustu við viðskiptavini SPRON og SPRON Verðbréfa í eðlilegt horf sem fyrst. „Þessi samningur er mjög þýðingarmikill bæði fyrir viðskiptavini SPRON og Íslensk verðbréf sem hafa yfir 20 ára reynslu á sviði eignastýringar. Við tökumst á við þetta verkefni af fagmennsku og viljum láta viðskiptavini SPRON finna frá upphafi að fjármunir þeirra eru komnir í örugga vörslu og stýringu hjá okkur," segir Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa Flutningur gagna og önnur undirbúningsvinna stendur nú yfir og verður hraðað eins og kostur er. Stefnt er að því að opna Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa og innlenda hlutabréfasjóði síðar í þessari viku.. Viðskiptavinir sjóða Rekstrarfélags SPRON geta snúið sér til Íslenskra verðbréfa og fengið þar nánari upplýsingar, þær er jafnframt að finna á heimasíðu ÍV. Þjónusta við viðskiptavini í vörslu og eignastýringu SPRON Verðbréfa færist til Íslenskra verðbréfa og geta viðskiptavinir í framhaldinu nálgast yfirlit, sótt ráðgjöf og fengið aðra almenna þjónustu á sviði eignastýringar og vörslu hjá Íslenskum verðbréfum. „Að vandlega athuguðu máli og eftir viðræður við fleiri aðila, sem teljast hæfir til að taka að sér þetta verkefni, var ákveðið að ganga til samninga við Íslensk verðbréf um þjónustu og umsýslu eigna sem tengjast sjóðum Rekstrarfélags SPRON hf. og eignastýringu SPRON Verðbréfa. Íslensk verðbréf hafa áratuga reynslu á þessu sviði og við treystum þeim til að veita viðskiptavinum SPRON trausta þjónustu," segir formaður bráðabirgðastjórnar SPRON.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira