Enginn brennumannanna játar að hafa kveikt eldinn 1. ágúst 2009 07:00 Vísa hver á annan Jón Kristinn og Ríkharð huldu andlit sín í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Þrír menn, sem ákærðir eru fyrir að kveikja í húsi við Kleppsveg í júní og stofna lífi manns sem var þar inni í hættu, neita því allir og benda hver á annan. Þetta kom fram við aðalmeðferð málsins í gær. Mönnunum þremur ber ekki saman um það hvers vegna þeir óku á ofsahraða, drukknir og í fíkniefnavímu, að húsinu að morgni 6. júní frá súlustaðnum Goldfinger, sem er í eigu föður eins sakborningsins, Jóns Kristins Ásgeirssonar. Jón Kristinn, 23 ára, segist hafa ætlað að nálgast upplýsingar um annan mann hjá húsráðanda, sem er góðvinur föður hans. Annar, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, 30 ára, segist hafa átt óuppgerðar sakir við húsráðanda vegna hótana í garð hans og fjölskyldu hans og sá þriðji, Karl Halldór Hafsteinsson, 28 ára, segist hafa verið dreginn með í ferðina og ekkert vitað. Með í för var systir Jóns Kristins, en hún segist hafa verið hálfsofandi í bílnum mestallan tímann. Hún er ekki ákærð. Þegar að húsinu kom fóru þremenningarnir út úr bílnum, Ríkharð tók að banka á hurð hússins og þegar enginn kom til dyra hellti einhver þeirra bensíni á hurðina og síðan var kveikt í því. Mönnunum ber ekki saman um hver hellti bensíninu og hver kveikti í og vísa hver á annan. Karl segir Jón Kristin hafa hótað sér og beðið sig um að taka á sig sökina. Þá geta vitni úr nálægum húsum ekki sagt til um það hver var að verki. Þeir segja hins vegar allir að sér hafi brugðið mjög þegar eldurinn blossaði upp eftir sprengingu innandyra og þeir hafi allir ætlað að slökkva eldinn, en slökkvitæki sem þeir voru með hafi ekki virkað. Húsráðandanum tókst að forða sér út úr húsinu á nærbuxunum með óvirkt slökkvitæki í höndunum. Hann kom fyrir dóminn og sagðist ekki hafa talið sig í bráðri hættu innandyra. Þessu er verkfræðingur sem lögregla fékk til að meta aðstæður ósammála. Eini fullnægjandi útgangurinn úr húsinu hafi logað og húsið hefði getað brunnið mjög hratt. Það var stórskemmt á eftir.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira