Hefur ekki sést í tuttugu ár 9. janúar 2010 05:00 Selfoss siglir með vörur. Útlit er fyrir að afgangur af vöruskiptum við útlönd í fyrra verði rúmir sjötíu milljarðar króna.Fréttablaðið/vilhelm
Afgangur af vöruskiptum nam sjö milljörðum króna í desember á nýliðnu ári, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar, sem birtar voru í gær. Gangi þetta eftir verður afgangur af vöruskiptum 72,9 milljarðar króna á öllu síðasta ári. Samkvæmt bráðabirgðatölunum nam útflutningur í desember 42 milljörðum króna en innflutningur 35,1 milljarði, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hækkandi álverð vegur upp minna verðmæti útfluttra sjávarafurða í mánuðinum. Þá dróst innflutningur mjög saman milli mánaða. Talsverður viðsnúningur varð á vöruskiptum við útlönd á seinni hluta árs 2008 eftir nær samfelldan halla frá aldamótum. Afgangur var af vöruskiptum í hverjum mánuði í fyrra en slíkt hefur ekki sést hér í meira en tuttugu ár. Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka, segir að legið hafi fyrir að afgangurinn myndi verða nálægt fimm prósentum af vergri landsframleiðslu og gæti spá Seðlabankans um 6,7 prósent afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á síðasta ári gengið eftir. Jón benti á það í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, á miðvikudag viðsnúninginn ekki skýrast að jafn miklu leyti af gengisfalli krónunnar og af sé látið. Samdrátturinn í vöruinnflutningi sé líkur því sem verið hefur á Írlandi og Lettlandi, löndum sem kreppan hefur leikið grátt. - jab
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Sjá meira