Á hlutabréf fyrir sex milljarða 9. janúar 2010 05:00 Jón S. von Tetzchner
Jón S. von Tetzchner, forstjóri og annar tveggja stofnenda norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera Software, steig í vikunni úr forstjórastólnum og hefur innanbúðarmaður af dönsku bergi brotinn tekið við stýrinu. „Mig langaði til að breyta til en mun halda áfram að gera mikið af því sem ég geri í dag og vera sýnilegur sem talsmaður fyrirtækisins þegar þarf," segir hann í skeyti til Fréttablaðsins og bætir við að hann muni eftirleiðis sinna ráðgjafarstörfum fyrir Opera Software en titlaður meðstofnandi. Jón stofnaði fyrirtækið, sem þróar og rekur Opera-netvafra fyrir bæði tölvur, farsíma og nettengdan tækjabúnað, í félagi við félaga sinn, Geir Ivarsøy sem er látinn, fyrir fimmtán árum. Í samtali við norska netmiðilinn E24 sagði hann brotthvarf sitt jafnast á við það að láta barn sitt í hendur annarra. Opera Software er skráð í norsku kauphöllina og nemur markaðsverðmæti þess tæpum 2,5 milljörðum norskra króna, jafnvirði 44 milljarða íslenskra. Jón á 13,4 prósenta hlut í fyrirtækinu í gegnum einkahlutafélagið Mozart Invest og nemur virði hlutarins rúmum 329 milljónum norskra króna, jafnvirði 5,8 milljarða íslenskra króna á gengi gærdagsins. Jón gaf stórfjölskyldu sinni hér og í Noregi einkahlutafélagið Digital Venture um mitt ár 2008. Inni í því voru 1,26 milljónir hlutir í Opera Software og nam verðmæti gjafarinnar þá 460 milljónum íslenskra króna. Fjölskyldan á hlutinn enn að mestu, að sögn Jóns.- jab
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira