Playboy viðtal veldur vanda 13. ágúst 2004 00:01
Enn virðist hlaupin ný snurða á þráðinn hjá netfyrirtækinu Google en hlutafjárútboð þess á bandarískum markaði hófst í gær. Félagið sat undir ámæli fyrir að hafa sniðgengið skráningarreglur vegna hlutafjáreignar starfsmanna fyrir skemmstu. Það sem nú veldur áhyggjum er viðtal karlatímaritsins Playboy við stofnendur Google. Samkvæmt reglum um skráð félög mega stjórnendur ekki tjá sig opinberlega í tiltekinn tíma áður en útboð hefst. Sérfræðingar telja að þótt innihald viðtalsins feli ekki í sér neinar upplýsingar kunni yfirvöld að líta rofið á þagnarbindindi stjórnendanna óblíðum augum. Í viðtalinu ræða stofnendurnir fyrst og fremst um hversu stoltir þeir séu af því að hafa skapað vöru sem velflestir internetnotendur nýti sér til gagns á hverjum degi. Forsvarsmenn Google halda því fram að þótt viðtalið sé birt nú hafi það verið tekið í lok apríl, áður en endanleg gögn voru send fjármálaeftirlitinu.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira