Afkoma ríkisins batnar milli ára 30. september 2005 00:01
Bráðabirgðatölur fyrir annan ársfjórðung þessa árs benda til þess að afkoma hins opinbera hafi batnað verulega frá því í fyrra að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Útlit er fyrir að heildartekjur ríkissjóðs hafi orðið 87,3 milljarðar króna á rekstrargrunni og tekjur hafi aukist um 30,1 prósent frá sama fjórðungi síðasta árs en gjöld um 16,4 prósent. Hið sama er ekki hægt að segja um sveitarfélögin. Þar eru tekjur á öðrum ársfjórðungi áætlaðar um 25,4 milljarðar króna en rekstrargjöld eru áætluð 24,4 milljarðar og sýnist rekstrarniðurstaðan því hafa orðið jákvæð um 1,0 milljarð. Þetta er hins vegar verri niðurstaða en í fyrra enda eru tekjurnar taldar hafa aukist um nær 19 prósent en rekstrargjöldin um nær 26 prósent. Fjárfesting sveitarfélaganna á öðrum ársfjórðungi er talin hafa orðið mun meiri en afskriftir þeirra og tekjujöfnuður því hafa orðið neikvæður um 1,9 milljarða samnborið við 1,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Heildartekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga, þ.e. hins opinbera í heild, eru áætlaðar 112,7 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2005. Hafa rekstartekjur aukist um 27,4 prósent frá því á sama tímabili í fyrra en rekstrargjöld um 17,5 prósent. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársins er afgangurinn áætlaður 0,3 prósent hjá hinu opinbera í heild. Í sama fjórðungi fyrra árs var tekjujöfnuðurinn neikvæður um 5,3 milljarða eða 0,6 prósent af landsframleiðslu ársins. Þá hafa heildartekjur hins opinbera á fyrri árshelmingi 2005 aukist um 23,3 prósent en rekstrargjöld um 12 prósent. Tekjujöfnuður hefur því batnað verulega. Hann er nú áætlaður 4,9 prósent af tekjum en var á sama tíma í fyrra talinn neikvæður um nánast sama hlutfall eða 4,7 prósent. Meginskýringin er batnandi hagur ríkissjóðs en tekjujöfnuður sveitarfélaganna hefur versnað lítið eitt.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira